19. júní - 19.06.1977, Page 39
karla. Jafnréttisráð starfar nú
samkvæmt þeim lögum.
Hin umsögnin var um skatta-
lagafrumvarp er lá fyrir Alþingi.
Starfshópur um skattamál
starfaði á vegum félagsins vetur-
inn 1975— 1976 og tók hann aftur
til starfa s. 1. haust og hélt marga
fundi auk þess sem skattamálin
voru mikið rædd í stjórninni.
Formaður og varaformaður K.R.-
F.f. ásamt tveim fulltrúum frá
Jafnréttisráði fóru til fundar við
þingnefndirnar, sem höfðu frum-
varpið til umfjöllunar. Stjórnin
hefur fylgst gaumgæfilega með
framvindu þessa máls og hafa ein-
stakir félagsmenn li'ð til sín heyra
eftir bestu getu á þeim almennu
fundum, sem boðaðir voru um
þetta mál í höfuðborginni.
Það er von stjórnar K.R.F.f. að
þessi barátta félagsins fyrir jafnrétti
í skattamálum beri nú loks árangur
eftir marga áratugi.
Félaginu barst boð frá Ráð-
herranefnd Norðurlandaráðs um
að senda þátttakanda á ráðstefnu
á vegum ráðherranefndarinnar,
sem haldinn var i Örenás í
Svíþjóð 21. —23. júní 1976. Á
þessari ráðstefnu var rætt um
jafnrétti í atvinnulífinu og var
Guðrún Gísladóttir fulltrúi
K.R.F.Í. á ráðstefnunni.
Þing Alþjóðasambands kvenna
(fnternational Alliance of Wom-
en) var haldið í New York í júlí-
mánuði 1976. Þingið sótti af hálfu
K.R.F.Í Björg Einarsdóttir vara-
formaður. Var Björg kosin í
stjórn Alþjóðasamtakanna og á
ísland nú fulltrúa þar öðru sinni
eftir nokkurra ára hlé en Sigríður
R. Magnússon, fyrrv. formaður
hefur átt sæti í stjórn samtak-
anna.
Framundan er fundur N.K.S.,
sambands norrænna kven-
réttindafélaga, í Stokkhólmi dag-
ana 2.-5. júní n. k. og munu þær
Valborg Bentsdóttir og Gerður
Steinþórsdóttir sækja fundinn
auk formanns.
Ársrit félagsins „19. júní“ kom
út að venju s. 1, sumar og var nú í
fyrsta skipti offsetprentað. Breytti
það nokkuð útliti blaðsins m. a.
voru mun fleiri myndir í því en
verið hefur. Því miður kom blaðið
ekki út fyrr en í lok júlimánaðar
og virtist það draga nokkuð úr
sölu. Ársritið er fjölbreytt að efni
og sitja í fyrirrúmi umræður og
fréttir af jafnréttis- og jafnstöðu-
málum heima og erlendis.
K.R.F.I. stendur í þakkarskuld
við prentsmiðjuna Odda í
Reykjavík fyrir óvenjulega góða
samvinnu varðandi útgáfu „19.
júní“ 1976, en blaðið var að þessu
sinni prentað þar.
Hinn 29. janúar s. 1. kom stjórn
og varastjórn félagsins saman til
hádegisfundar að Hallveigar-
stöðum í tilefni afmælis K.R.F.Í.
Félaginu bárust blóm og kveðjur
víða að vegna afmælisins og var
samþykkt að láta gera spjöld með
merki og nafni félagsins til að
senda við sérstök tækifæri og til
nýrra félaga og bjóða þá vel-
komna í félagið. Kortið hefur nú
verið útbúið og velunnarar
K.R.F.I. færðu því það að gjöf
vegna afmælisins. Á þessum
fundi ákváðu viðstaddir að færa
félaginu gestabók í afmælisgjöf
og safnaðist svo mikið fé að unnt
reyndist einnig að festa kaup á
myndaalbúmi og úrklippubók og
er félagið því vel í stakk búið að
halda til haga því sem fram fer á
þess vegum.
Á aðalfundinum voru tveir
félagsmenn, er árum saman hafa
starfað af áhuga og ósérplægni í
þágu K.R.F.I. gerðir að heiðurs-
félögum, en það voru þær Anna
Sigurðardóttir, núverandi for-
stöðumaður Kvennasögusafns
íslands og Guðný Helgadóttir,
fyrrum formaður félagsins.
I lok skýrslu sinnar á aðalfundi
lagði Sólveig Ólafsdóttir, for-
maður K.R.F.I. áherslu á að
nauðsyn bæri til að efla fjárhag
félagsins og að átaks væri þörf í
því skyni, án fjármuna gæti
K.R.F.Í. ekki starfað að mark-
miðum sínum fremur en önnur
félagasamtök.
Á aðalfundi kom fram tillaga
um að hækka árgjaldið í kr. eitt
þúsund og var það einróma sam-
þykkt.
37