Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1886, Blaðsíða 2

Sameiningin - 01.06.1886, Blaðsíða 2
—50— vora, svo fámenn sem hún er, aS minnsta kosti standa hverri annarri heimsins þjóú jafnfœtis í menntalegu tilliti. Yér finnum einmitt sáran til þarfar á meiri upplýsing nú á þessari tíð fyrir þjóð vora bæði heima á Islandi og hér í þessu landi, því vér sjá- um, að lífið, eins og það nií verðr að vera, gjörir kröfur til auk- innar menntunar fram yfir það, sem við mátti una áðr. 0g gleði- legt er að vita til þess, að fólk þjóðar vorrar hefir í sannleika eins mikinn móttöku-hœfilegleika fyrir þeklcing og menntan eins og fólk þeirra þjóða, er fremstar þykja standa. Enda virðist það eigi síðr gleðiefni, að tilfinningin meðal hinnar íslenzku þjóðar er greini- lega á þessum tíma að vaxa fyrir því að meira þurfi að gjöra almenn- ingi til menntunar heldr en nokkru sinni áðr hefir gjört verið. En það er önnur nauðsynleg tilfinning, snertandi menntanina, sem því miðr of lítið virðist bera á meðal þjóðar vorrar. það er til- finning fyrir því, að menntan sú og upplýsing, sem nú er eign Is- lendinga eða sem nú er verið að breiða út rneðal þeirra, sé að all- miklu leyti í öfuga stefnu, hálf-menntan, sem ekki gjörir menn neitt hœfari fyrir skyldustörf daglega lífsins, oft jafnvel óhœfari fyrir þau, heldr en ef eigin menntan hefði veitzt, og í annan stað dregr menn burtu frá því, sem—þegar allt kemr til alls—„eitt er nauðsynlegt“, burtu frá ljósi kristindómsins. Að slík öfug upp- lýsing, slík lcristindóminum andstœð hálf-menntan, einnig að nreiru eðr minna leyti á heima meðal annara þjóða er auðvitað satt, en það er oss engin bót í máli, enda átti það ekki eiginlega að vera umtalsefni vort nú, Yér erum hér um það að tala, hvað að er fyrir oss með tilliti til upplýsingar. Og vér höfum þegar laus- lega bent á, hvað að muni vera. Ef maðrinn fyrir þá upplýsing, sem hann hefir fengið, missir hœfilegleikann til að gegna störfum dag- legs lífs, verðr óhœfilegri til að vinna á einhvern sœmilegan hátt fyrir daglegu brauði sínu, verðr gagnsminni fyrir borgaralegt mannfélag, eða ef hann verðr blindr fyrir ljósi því í andleguin efnum, sem kristindómrinn hefir meðferðis, þá verðr eigi annað séð, en að hann með menntan sinni hafi fengið sannarlegt villu- ljós. Auðvitað kemr oss eigi til hugar að segja, að skólamennt- an sú, sem Islendingar á þessum tíma njóta almennt, beri fyrir alla þessa súru ávexti. Eigi svo fáir af fólki þjóðar vorrar hafa á þessum síðustu tímum fyrir menntan þá, er þeim hefir veitzt, komið frarn sem stór-uppbyggilegir menn í borgaralegu tilliti og sýnast í engu að hafa dregizt frá kristindóminum, heldr öllu fremr hið gagnstœða. En aftr virðast hinir svo margir, sem fyr-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.