Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1886, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.06.1886, Blaðsíða 14
—62— lerar. það aS vér íslenclingar höfum átt íræga forfeðr og glœsi- lega fornöld, fulla af hreysti, frelsi og drengskap, dugar oss aS engu, ef þessi föSurarfr er farinn, ef í staSinn fyrir þessa gömlu og góSu gullskildi cru komnir ónýtir eftirgjörSir eirskildir, eins og ]>eir, sem Róbóam konungr lét forSum smíSa í staS þeirra, sem Egyptalandskonungr lét frá honum ræna og sem hann hafSi erft eftir Salómon föSur sinn (sjá 1. Kg. 14, 26-27). þetta dugar oss ekki fremr en það dugSi GySingum á Krists tímum aS telja sér þaS til gildis, aS Abraham, sá mikli maSr, var forfaSir þeirra. —HvaS er þaS, sem gjörir mann frjálsan, sannarlega frjálsan ? Sannleikrinn, segir Jesús. „HvaS er sannleikr ? “ spurSi Pílatus. Yantrúin þykist allt af vera að leita sannleikans. Menn grafa undirstöSuna undan trú og guðs ótta í hjarta sínu og annarra, og þykjast vera aS leita sannleikans. „þitt orS er sannleikr", segir Jesús biSjandi viS föSur sinn á himnum. Enginn annar sannleikr getr gjört þig frjálsan, maSr, Margir píslarvottar drottins hafa veriS í fjötrum og fangelsi, en þeir voru þó frjálsir—fyrir sann- leik guSs orSs. Margir krossberar eru enn í böndum dauSans, en þeir eru þ(5 frjálsir—fyrir þennan sama sannleika. „Sá, sem syndina drýgir, er þræll syndarinnar".—Nú er frelsis-öld kölluS, og menn heilsa þeim degi, þá er þjóSirnar telja aS þær hafi frelsi sitt fengiS, í þessu landi og svo mörgum öSrum löndum árlega meS fögnuði og gleSilátum. Vilja menn þá ekki líka eiga and- lega frelsisöld og hætta aS vera þrælar syndarinnar ? Sjálfr getr þú ekki af eigin rammleik orSiS frjáls í þessum skilningi, en guSs sonr meS sínu sannleiksorSi getr gjört alla frjálsa. „Hann gefr hreina trú, hann fallinn reisir; Hann veikan hressir nú, hann bundinn leysir“. Sá maðr, sem kom bindindis-starfseminni fyrst á í Bretlandi (og þá með pví eiginlega einnig i Norðrálfu), var Livesey frá Preston í Englandi, sem nú er fyrir skömmu dáinn. En hér í Vestrheimi er baráttan gegn ríki Bakkusar miklu eldri, og voru árið sem leið rétt hundrað ár liðin frá því er sú barátta hófst. Og byrj- anin var sú, að Dr. Benjamín Rush í Philadelphia gaf út ritgjörð, sem vakti hina mestu eftirtekt, um áhrif brennivíns á mannlegan líka-ma. Og í Philadelphia var stórkostleg hátíðarsamkoma haldin 23. og 24. Sept. síðastl. haust í nafni alls-herjar bindindisfélaga landsins til minningar þessa atburðar, sem öll hin mikla starfsemi fyrir bindindismálið nú á tímum á rót sína að rekja til og sem gjörðist fyrir hundrað árum. A samkomu þessari var af merkum rœðumönnum gefin lýsing á )>ví meðal annars, hvernig og af hverjum helzt hefir á liðinni öld verið unnið hér í Iandi fyrir framgangi bindindismálsins, hvað gjört hefir verið' í heiminum yfir höfuð, síðan bindindis-s( arfsemin hófst, í sömu átt, og sérstaklega, hvað starfsmenn

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.