Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1886, Page 7

Sameiningin - 01.06.1886, Page 7
sjá nni prestvígslu innan kirkjufélagsins, ef þörf gjörist, skera úr vafamálum, er upp kunna að koma meðal safnaðanna, og hafa yfmnnsjón á hendi með prestum og söfnuðum félags- ins. Safnaðamálefni, er samkvæmt eðli sínu geta heyrt undir ársfund kirkjufélagsins, skulu þó borin þar upp til endilegs úrskurðar, ef hlutaðeigendr œskja, samkvæmt 11. grein. Skrifari gegnir öllum ritstörfum félagsins og varðveitir O o o o skjöl þess og hœkr. Féhirðir varðveitir sjóð félagsins og hefir innlcöllun og útborgun á hendi samlcvæmt skriflegri ávísan frá formanni. Hann skal gefa veð fyrir sjóði félagsins til tryggingar, ef krafizt er. Skyldur varaformanns, varaskrifara og varaféhirðis eru all- ar hinar sömu í forföllum hinna. Allir embættismenn félagsins bera fyrir ársfundi ábyrgð á embættisfoerslu sinni. § 9. Til þess að ákvarðanir um mál þau, sem rœdd eru á ársfundum, nái lagagildi, verða að minnsta kosti tveir þriðj- ungar þeirra manna, sem sæti eiga á fundinum, að vera þar staddir, og meiri hluti þeirra að greiða atkvæði með. þeir, sem sæti eiga á fundinum, en koma ekki, verða að gjöra fund- inum grein fyrir fjarveru sinni; fundrinn sker iir, hvort ástœð- urnar sé gildar eða eigi. Sé um grundvallarlagabreyting að rœða, þá nær hún framgangi, ef hún er samþykkt af tveim þriðju þeirra, er sæti eiga á ársf'undi, en þó því að eins, að breytingin hafi verið borin upp á næsta ársfundi á undan. þó verðr 3. grein grundvallarlaganna aldrei breytt. § 10. Söfnuðir þeir, sem í kirkjufélaginu standa, skulu að eins hafa þá fyrir presta, sem vissa er fyrir að hafi nœgilega guð- frœðisþekking, sé vígðir, sýni það í dagfari sínu, að þeir hafi einlægan áhuga á efling og útbreiðslu kristilegrar lcirkju, hafi sömu trúarskoðanir og kirkjufélagið og samþykki grundvall- arlög þess með undirskrift sinni. § 11. Kirkjufélagið hefir á ársfundum sínum œðsta úrskurðar- vald í öllum kirkjulegum ágreiningsmálum, sem upp kunna að koma á millum safnaða þess eðr innan þeirra. | 12. Ollum embættismönnum sínum getr. kirkjufélagið vikið lir embætti á kristilegan hátt. Gild ástœða til þess er hneyksl- anlegt líf eða vanrœkt embættisslcyldu af ásettu ráði.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.