Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1886, Page 12

Sameiningin - 01.06.1886, Page 12
—60— forða, maðr, til saðningar sálu þinni á ókominni tíð hörmunga, sorga og dauða ? Allir hungraðir lcomi til frelsarans, og þeir, sem ekki enn finna til hungrs, en sjá fram á þann tíma, þegar engin jarðnesk fœða getr veitt saðning, þeir komi líka. Komið börn og fullorðnir, konur og karlar, fátœkir og ríkir, sjúlcir og heil- brigðir, og þiggið fœðuna, sem frelsarinn býðr. „þann sem til mín kemr, mun eg ekki burtu reka“—segir Jesús. það, sem gjörðist á síðasta degi laufskálahátíðarinnar í Jerú- salem, orð Jesú þá og hinn mismunandi dómr manna um hann, er efnið í 11. lexíunni. Hatrið gegn Jesú var orðið svo magnað hjá Faríseum, að þeir voru búnir að senda út þjóna sína til að handtaka hann. En tíminn var ekki enn kominn. þeir hneyksl- uðust nú svo að segja á hverju orði hans En rnitt í þessu brenn- anda hatrsbáli kemr Jesús fram síðasta hátíðardaginn með þetta inndœla evangelíum: „Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki“. Mörgum öldum áðr hafði Esajas spámaðr í drottins nafni flutt þennan boðskap: „Heyrið, allir þér, sem þyrstir eruð, gangið til vatnsíns;.......komið og kaupið, án silfrs og ókeypis, bæði vín og mjólk" (Esaj. 55,1). það er sami boðskaprinn, sem Jesús kemr með, eins og þetta, nema hvað hann bendir nákvæmlega á, hvar þessa iífsins vatns er að leita. Hann bendir á sjálfan sig, býðr öllum þyrstum sálum til sín. Ef það var nokkuð, sem átti að geta sannfœrt Farísea og þeirra líka til forna um það, hver Jesús frá Nazaret væri, að hann var hinn fyrirheitni Kristr, þá var það þetta, að hann býðr 'öllum þyrst- um, öllum mœddum, öllum voluðum, öllum allslausum aumingj- um, öllum syrgjandi, hræddum, áhyggjufullum syndurum til sín og heitir þeim svölun, friði, hvíld. En þeir vildu elcki trúa. þeir drógu alls konar svo kallaðar skynsemis-ástœður fram fyrir því, að hann gæti ekki verið sá, sem hann var og sagðist vera. þjónarnir, sem sendir voru til að handtaka hann, gáfust upp, því orðin, sem hann talaði, brunnu í samvizku þeirra. „Aldrei hefir nokkur talað eins og þessi maðr“ sögðu þeir. Omenntuðu menn- irnir reyndust hér betri—margfalt betri—en þeir, sem þóttust vera andlegir ljósberar í Israel. Hér er áminning fyrir þá, sem menntaðir þykjast, um að gæta að sé'r. Sumir segja eða svo gott sem segja: „Kristindómrinn getr verið nógu góðr fyrir mennt- unarlausa alþýðu, en vér erum upp yfir slíkt hafðir“.—„Trúir nokkur af höfðingjunum á hann ? “ spurðu Farísear, og bœttu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.