Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1886, Side 13

Sameiningin - 01.06.1886, Side 13
61— við: „En þessi múgr, sem ekki þekkir lögmölið, er bölvaðr“. Sannanirnar í'yrir sannleika hins kristilega evangelíums liggja í allt annarri átt en margir með virkilegri eða ímyndaðri upp- lýsing leita. þeir hirða eigi um að líta inn í hjarta sitt, finna ekki til sjúkleika þess og þýðast því ekki þann Jæknisdóm, sem drottinn býðr. Drottinn lítr á hjartað. Líttu á hjarta þitt líka, og hættu ekki við þá skoðan fyr en þú hefir fundið, hve veikt og brothætt það er. Hlustaðu svo á Jesúm, þá er hann býðr hinum mœddu og þyrstu sálum til sín. þá muntu geta vitnað: Jesús er Kristr; hans boðskapr er sannleikrinn eini, mikli og guðdómlegi, sem dugar fyrir líf og dauða. Síðari helmingrinn af 8. kap. i Jóh. guðspj. er 12. lexían. Jesús er enn að tala við Gyðinga í Jerúsalem. Fjandskaprinn gegn honum er óðum að magnast, er nú bráðum kominn á sitt hæsta stig, og rœða Jesú er nú líka harðari en nokkru sinni áðr. Hann er hér að tala til manna sem þegar eru í þann veg- inn að verða algjörlega forhertir. Hann skiftir ávallt um rödd eftir því, hvílík hjörtu þeirra eiu, sem hann er að ávarpa. Hið milda evangelíum flytr hann öllum voluðum. Hann segir við þá: „Komið til mín allir þér, sem erviðið og þunga eruð hlaðnir; eg vil gefa yðr hvíld“ (Matt. 11, 28). En við hina forhertu, guð- lausu, hrokafullu sjálfbyrginga segir hann: „þér eruð af föðurn- um fjandanum og girndum föður yðar viljið þér hlýðnast“ o. s. frv. Sjáið, hvílíkan myndugleika Jesús hefir, hvort sem hann flytr orð náðarinnar eða orð dómsins! Enginn, sem að eins hefði verið góðr inaðr, hefði getað sagt neitt þvílíkt. Enginn nema sá, sem er heilagr guð, sem allt vald liefir bæði á himni og jörðu, getr talað slíkum orðum.—Gyðingar þeir, sem Jesús átti tal við í þetta sinn, styggðust stórum við hann út af því að liann sagði, að ef þeir héldi við sitt orð, þá myndi þeir þelckja sannleikann og sannleikrinn myndi gjöra þá frjálsa. Hann gaf þeim Ijóslega í skyn, að þeir væri ekki frjálsir, að þeir væri þrælar. þeir voru hreyknir af því að svo mikill maðr eins og Abraham var forfaðir þeirra, og þjóðernis-gorgeirinn lét þeim finnast þeir vera öllum öðrum þjóðum óháðir, enda þótt þeir einmitt á þessum tíma væri fullkomlega undir Rómverja gefnir. En Jesús var ekki að tala um pólitiskt frelsi, heldr um siðferðislegt, andlegt frelsi. Margir telja sér það til gildis, að þeir eigi svo og svo mikla og göfuga menn í ætt sinni. Slíkt er heimska fyrirþá, sem orðnir eru ætt-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.