Fréttablaðið - 06.12.2010, Page 34
18 6. desember 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jólin koma eftir átján daga. Aðfangadag ber upp á föstudag þetta árið svo þau
verða stutt, ekki nema rétt helgin. Ein-
hverjir hafa haft orð á því að allt umstang-
ið í aðdraganda jólanna fari hálfpartinn
fyrir lítið, þetta verði ekki neitt neitt. Við
verðum komin í vinnuna áður en við vitum
af og hversdagurinn hellist yfir á ný.
JÓLASTRESS er ástand sem við þekkjum
öll á aðventunni. Hreingerningar, bakstur
og hlaup eftir gjöfum búð úr búð yfir-
taka líf okkar svo okkur duga ekki
klukkutímarnir í sólahringnum til.
Blóðþrýstingurinn er í hámarki
alveg fram á síðustu mínútur áður
en klukkan slær sex og jólin klingja
inn. Þetta er auðvitað ekkert vit og
á hverju ári hristum við hausinn yfir
hamaganginum og ætlum okkur að
taka því rólegar næst. Munum
svo ekkert eftir því þegar
við æðum milli sömu búða
með öndina í hálsinum á
næstu aðventu.
ÞAÐ sem hefur þó bjargað
okkur frá því að fá hrein-
lega taugaáfall eftir lætin
er að á slaginu sex dettur
allt í dúnalogn. Helgi jólanna
læðist inn í hjörtu okkar, við
setjumst til borðs með fjölskyldu og vinum
og slökum á. Næstu dagar á eftir hafa farið
í lestur bóka, smákökuát og rólegheit. Ein-
hverjir sofa fram yfir hádegi og tíminn
stendur kyrr. Við eigum ekkert erindi út,
nema kannski í stöku jólaheimsókn. Við
erum í jólafríi.
ÞESSI jólin verður því þó ekki að heilsa.
Það er varla að við munum ná blóðþrýst-
ingnum niður fyrir hættumörk áður en
mánudagurinn skellur á og við mætum
aftur í vinnustressið. Þá eru fjórir og hálf-
ur vinnudagur til áramótanna sem eru
jafnstutt í annan endann. Að ég tali nú
ekki um þá fjölmörgu sem þurfa að vinna á
jólum og áramótum.
AUÐVITAÐ gætum við tekið okkur á orð-
inu frá því í fyrra og tekið því rólega þessa
aðventuna. Reynt að njóta eftirmiðdaganna
heima í faðmi fjölskyldunnar við jólafönd-
ur og kertaljós í stað þess að æða um loft
og veggi með þvegil fram á nótt. Það er
þó hægara sagt en gert, eins og við höfum
rekið okkur á.
KANNSKI ættum við þó að reyna enn
betur þessa aðventuna, einmitt vegna þess
hversu jóafríið verður stutt. Jólin koma
hvort sem þvegillinn hefur verið á ferðinni
eða ekki.
Jólafríið fyrir jól
Dagur 113 - Nauðlendingin er
orðin gömul minning núna. Ég
reyni að vera jákvæður. Ég lifi á
fiski, en ég sakna svo sannarlega
bragðsins af dádýrakjöti. Ójá
maður, yndislega dádýrakjötið!
Nei! Ný
íslensk
mynd í
bíó!
Ingvar E!
Gísli Örn!
Ilmur!
Hilmir Snær!
Það eru
bara allir
með! Ertu
búinn að
sjá hana?
Nei. Eigum
við bara fjóra
leikara hér á
landi?
Það er
rétt!
Eða kannski
fimm. Balti
er með þegar
það vantar
einhvern
skuggalegan!
Eins gott
að Holly-
wood
er ekki
hérna við
Esjuna!
Í hlutverki
Múhameðs Alí:
Ingvar E. Sig-
urðsson! Hann
snýr aftur, harð-
ari en nokkru
sinni fyrr!
Viltu bita? Auðvitað! Þú ert nú meiri
daðrarinn.
Þú byrjaðir.
Þannig að
við erum
á leið til
læknis til
að sjá hvort
það þarf að
sauma Lóu?
Ein-
mitt.
Æi! Veskið
mitt! Viltu
hlaupa og ná í
það Hannes?
Passaðu þig, stéttin er… … hál.
KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR
SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD
fást í Eirvík
JÓLIN KOMA
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Ái, á, á,
ááá!
Já.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
LÁRÉTT
2. útdeildu, 6. 999, 8. fljótfærni, 9.
lærdómur, 11. vörumerki, 12. kompa,
14. bjúga, 16. grískur bókstafur, 17.
keraldi, 18. kjáni, 20. hreyfing, 21.
djamm.
LÓÐRÉTT
1. málmur, 3. óð, 4. stjónmálastefna,
5. suss, 7. talsmaður, 10. stúlka, 13.
skáhalli, 15. eyðimörk, 16. samstæða,
19. 49.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gæfu, 6. im, 8. ras, 9.
nám, 11. ss, 12. klefi, 14. pylsa, 16. pí,
17. ámu, 18. api, 20. ið, 21. rall.
LÓÐRÉTT: 1. sink, 3. ær, 4. fasismi, 5.
uss, 7. málpípa, 10. mey, 13. flá, 15.
auðn, 16. par, 19. il.