Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 40
6. desember 2010 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON og félagar í svissneska liðinu Kadetten Schaff-
hausen eru komnir með annan fótinn í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í handknattleik
eftir sigur á AaB, 34-31. Rhein-Neckar Löwen og Kiel eru einnig á leið áfram í keppninni en
Löwen lagði Celje Lasko um helgina en Kiel tapaði fyrir Barcelona.
Powerade-bikar karla:
Snæfell-Njarðvík 97-98
Snæfell: Ryan Amaroso 28, Sean Burton 21, Jón
Ólafur Jónsson 19, Emil Þór Jóhannsson 11, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 10, Atli Rafn Hreinsson 3, Egill
Egilsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2.
Njarðvík: Christopher Smith 29, Guðmundur
Jónsson 21, Jóhann Árni Ólafsson 14, Magnús Þór
Gunnarsson 9, Páll Kristinsson 6, Lárus Jónsson
6, Rúnar Ingi Erlingsson 5, Friðrik Stefánsson 5.
Powerade-bikar kvenna:
Fjölnir-Keflavík 61-89
Eimskipsbikar karla:
Víkingur-Akureyri 18-34 (11-16)
Mörk Víkings (Skot): Benedikt Karl Karlsson 4
(5), Brynjar Loftsson 3 (5), Jón Hjálmarsson 3
(7), Sverrir Hermannsson 3/1 (10/2), Jóhann
Reynir Gunnlaugsson 2 (3), Kristinn Guðmunds-
son 2 (3), Óttar Filipp Pétursson 1 (4).
Varin skot: Jón Árni Traustason 5, Halldór
Rúnarsson 4.
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 12/4
(14/4), Oddur Gretarsson 8/1 (10/1), Bergvin
Gíslason 4 (5), Geir Guðmundsson 2 (2), Heimir
Árnason 2 (3), Hörður Sigþórsson 2 (5), Daníel
Örn Einarsson 1 (1), Guðlaugur Arnarsson 1 (1),
Jón Sigurðsson 1 (2), Hlynur Matthíasson 1 (2).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 15, Stefán
Guðnason 8/2.
Fram-Haukar 32-31
Mörk Fram: Andri Berg Haraldsson 6, Haraldur
Þorvarðarson 5, Róbert Aron Hostert 5, Magnús
Stefánsson 4, Einar Rafn Eiðsson 4, Halldór
Jóhann Sigfússon 3, Matthías Daðason 3, Arnar
Birkir Hálfdánsson 1.
Mörk Hauka: Björgvin Hólmgeirsson 6, Guð-
mundur Árni Ólafsson 6, Þórður Guðmundsson
5, Stefán Rafn Sigurmannsson 4, Freyr Brynjars-
son 4, Heimir Óli Heimisson 3, Tjörvi Þorgeirsson
1, Jónatan Jónsson 1, Einar Örn Jónsson 1.
Selfoss-Valur 25-29 (14-12)
Mörk Selfoss: Ragnar Jóhannsson 10, Guðni
Ingvarsson 4, Atli Einarsson 3, Guðjón Drengsson
2, Helgi Héðinsson 2, Gunnar Jónsson 2.
Mörk Vals: Valdimar Þórsson 14, Orri Freyr
Gíslason 5, Anton Rúnarsson 5, Sturla Ásgeirsson
2, Einar Guðmundsson 1, Ernir Hrafn Arnarson 1,
Sveinn Sveinsson 1.
ÚRSLIT
Poweradebikar karla:
KR-Hamar 99-74
KR: Brynjar Þór Björnsson 25/6 stoðsendingar,
Marcus Walker 21/6 stoðsendingar, Fannar
Ólafsson 17/5 fráköst, Ólafur Már Ægisson 9, Jón
Orri Kristjánsson 8/6 fráköst, Pavel Ermolinskij
7/11 fráköst/12 stoðsendingar, Hreggviður Magn-
ússon 7, Matthías Orri Sigurðarson 3.
Hamar: Andre Dabney 16/5 fráköst, Snorri
Þorvaldsson 15, Nerijus Taraskus 12/6 fráköst,
Darri Hilmarsson 8, Ellert Arnarson 7, Ragnar Á.
Nathanaelsson 4, Svavar Páll Pálsson 4/7 fráköst.
Keflavík-Tindastóll 78-95
Keflavík: Valentino Maxwell 26, Hörður Axel
Vilhjálmsson 17/4 fráköst/12 stoðsendingar/6
stolnir, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16/11
fráköst, Jón Nordal Hafsteinsson 6, Þröstur Leó
Jóhannsson 6, Lazar Trifunovic 4/6 fráköst.
Tindastóll: Hayward Fain 29/14 fráköst/3 varin
skot, Sean Kingsley Cunningham 27/6 stolnir,
Dragoljub Kitanovic 21/6 fráköst, Friðrik Hreins-
son 7, Helgi Freyr Margeirsson 6/4 fráköst/5
stoðsendingar, Hreinn Gunnar Birgisson 2,
Halldór Halldórsson 2.
Vika á skíðum
í Madonna á Ítalíu frá.
127.900 kr.
Verð á mann m.v. 5 fullorðn
a í viku í
íbúð á Residence Ambiez
Brottför: 26. feb 2011
kr.
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is
18.900
HANDBOLTI Akureyringar flugu
auðveldlega inn í undanúrslit bik-
arsins með því að leggja Víkinga
á útivelli með sextán marka mun.
Norðanmenn voru í miklum ham
í hröðum sóknum sínum og voru
einfaldlega allt of stór biti fyrir
Víkinga sem eru að ströggla í 1.
deildinni.
„Þetta var skyldusigur hjá
okkur. Við komumst í 4-0 en byrj-
uðum svo að slaka á. Svo mættum
við bara í seinni hálfleikinn og
keyrðum yfir þá,“ sagði markvörð-
urinn Sveinbjörn Pétursson eftir
leikinn en fimm marka munur var
á liðunum í hálfleik.
„Við spiluðum sterka vörn og
vorum skynsamir í sóknarleikn-
um, þetta var þægilegur sigur en
við komum inn í þennan leik af
100% krafti. Við stefnum alla leið
í þessari keppni eins og öðrum en
þetta er bara eitt skref í áttina að
því.“
Nokkurt ósamræmi var í dóm-
gæslunni og fannst heimamönnum
á sig hallað. Jóhann Reynir Gunn-
laugsson var kominn með útilok-
un eftir tæplega fimmtán mínútna
leik þegar hann fékk sína þriðju
brottvísun og skömmu síðar fékk
varamannabekkur Víkinga tvær
mínútur fyrir að mótmæla dóm-
gæslunni.
Akureyri heldur áfram á sigur-
braut, hafði undirtökin og aðeins
formsatriði fyrir liðið að klára
seinni hálfleikinn. Róbert Sig-
hvatsson, þjálfari Víkinga, segist
taka jákvæðu punktana úr leikn-
um. „Þetta var ekkert of stórt
fyrir okkur, þetta var bara gaman
fyrir okkur. Þetta er fínt fyrir
ungu strákana að fá að mæta svona
sterku liði og gefur þeim reynslu,“
sagði Róbert sem telur að þessi
leikur muni hjálpa sínu liði í bar-
áttunni fram undan í deildinni.
- egm
Víkingur var engin fyrirstaða fyrir Akureyringa:
Greið leið í undanúrslit
BARÁTTA Víkingar máttu sín lítils gegn sterku liði Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI „Við vildum senda smá
skilaboð á móti þessu liði. Við
gerðum það svo sannarlega ekki
á jákvæðan hátt í Hveragerði,“
sagði Hrafn Kristjánsson, þjálf-
ari KR, eftir að hans menn unnu
Hamar 99-74 í gær og tryggðu sér
þar með sæti í átta liða úrslitum
bikarsins.
KR-ingar biðu lægri hlut þegar
liðin mættust í deildinni í Hvera-
gerði en annað var uppi á teningn-
um í gær. Þeir voru yfir allan tím-
ann og sigurinn aldrei í hættu.
„Leikplanið gekk mjög vel.
Varnarleikurinn var að mestu
mjög góður, við fengum aðeins 39
stig á okkur í fyrri hálfleik í mjög
hröðum leik. Þeir voru að setja
þó nokkuð mikið samt af erfiðum
stigum og við getum verið mjög
ánægðir. Þegar þetta lið spilar lið-
svarnarleik og menn eru að hjálpa
hver öðrum þá er erfitt að mæta
okkur,“ sagði Hrafn.
Heimamenn byrjuðu mun betur,
náðu strax góðri forystu en slök-
uðu svo lítillega á svo Hamar náði
að saxa á forskotið. En þá setti KR
aftur í réttan gír og sigldi leikn-
um örugglega í höfn. Brynjar Þór
Björnsson var stigahæstur KR-
inga en Fannar Ólafsson átti einn-
ig flottan leik.
„Við ætlum okkur alla leið í
þessari keppni. Það var gefið út
strax í upphafi tímabils að við ætl-
uðum að berjast um alla titla sem
í boði eru. Þetta er einn af þeim
áföngum sem við þurftum til að
ná því og nú vonast ég bara eftir
heimaleik í næstu umferð,“ sagði
Fannar.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari
Hamars, var langt frá því að vera
sáttur við sitt lið.
„Við spiluðum engan veginn
nægilega vel í þessum leik. Við
eigum að geta barist betur og spil-
að betri vörn. KR er að skora allt-
of mörg stig hér í upphafi leiks.
Svo fylgdi því deyfð að vera undir
og menn fóru of mikið að einblína
á stöðuna í stað þess að einblína á
spilamennskuna.“
Þess má geta að þrír dómarar
dæmdu leikinn í gær og var einn
dómarinn kona, Josefin Winther
frá Noregi. elvargeir@frettabladid.is
Þægilegur sigur hjá KR
KR er komið í átta liða úrslit í Powerade-bikarnum eftir öruggan sigur á Hamri
í gær. Bikarmeistarar Snæfells eru úr leik og Tindastóll vann í Keflavík.
ÖFLUGUR Pavel Ermolinskij átti flottan leik með KR eins og venjulega.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN