Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 42
26 6. desember 2010 MÁNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
WBA-NEWCASTLE 3-1
1-0 Somen Tchoyi (31.), 2-0 Peter Odemwingie
(70.), 3-0 Peter Odemwingie (89.), 3-1 Peter
Lövenkrands (90.)
SUNDERLAND-WEST HAM 1-0
1-0 Jordan Henderson (33.)
ARSENAL - FULHAM 2-1
1-0 Samir Nasri (13.), 1-1 Diomansy Kamara
(29.), 2-1 Samir Nasri (74.), 2-1 Samir Nasri (75.).
BIRMINGHAM CITY - TOTTENHAM 1-1
0-1 Sebastien Bassong (18.), 1-1 Craig Gardner
(80.).
BLACKBURN - WOLVES 3-0
1-0 David Dunn (28.), 2-0 Brett Emerton (42.),
3-0 Ryan Nelsen (54.).
CHELSEA - EVERTON 1-1
1-0 Didier Drogba (41.), 1-1 Jermaine Beckford
(85.).
MANCHESTER CITY - BOLTON 1-0
1-0 Carlos Tevez (3.).
WIGAN ATHLETIC - STOKE CITY 2-2
0-1 Robert Huth (17.), 1-1 Antolon Alcaraz (29.),
1-2 Matthew Etherington (30.), 2-2 Tom Cleverley
(39.)
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA:
Arsenal 16 10 2 4 34-18 32
Man. United 15 8 7 0 35-16 31
Chelsea 16 9 3 4 30-11 30
Man. City 16 8 5 3 21-12 29
Tottenham 16 7 5 4 24-21 26
------------------------------------------------------
Fulham 16 2 9 5 16-20 15
Wigan Athletic 16 3 6 7 13-28 15
West Ham 16 2 6 8 14-27 12
Wolves 16 3 3 10 17-30 12
ÚRSLIT
HANDBOLTI Það er aðeins einn
dagur í stóra daginn hjá kvenna-
landsliðinu. Á morgun verður
flautað til leiks á EM í Danmörku
og Ísland er meðal þátttakenda í
fyrsta skipti.
Ekkert varð af æfingalands-
leik gegn Spáni í gær þar sem
spænska liðið komst ekki til Dan-
merkur vegna verkfalls flug-
vallarstarfsmanna á Spáni.
„Það var auðvitað leiðinlegt að
ná ekki þessum leik. Við reynd-
um að redda leik gegn félagsliði
í Álaborg en það gekk ekki upp.
Við verðum því að setja upp leik
á æfingu. Það er ekkert annað að
gera. Það hefði verið gott að fá
þennan leik en þetta setur ekki
mikið strik í undirbúninginn hjá
okkur,“ segir Júlíus Jónasson
landsliðsþjálfari sem var í góðu
yfirlæti á hóteli íslenska liðsins
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum.
„Það fer mjög vel um okkur
hérna og ekki yfir neinu að
kvarta. Við tókum æfingu um
leið og við komum til að hrista
úr okkur ferðalagið. Vorum svo
með fund og hópurinn var þreytt-
ur eftir daginn,“ segir Júlíus
sem segir liðið einnig hafa farið
í góðan göngutúr í íslensku jóla-
veðri en það snjóaði á stelpurnar
í gær.
„Við höfum reynt að hafa rólega
og þægilega stemningu. Það er
létt yfir stelpunum sem eru orðn-
ar mjög spenntar fyrir því að
byrja,“ segir Júlíus.
Til þess að ná því markmiði
sínu að komast í milliriðil þarf
íslenska liðið að vinna einn leik í
riðlakeppninni. Flestir spekingar
eru sammála því að besta tæki-
færi Íslands til þess að vinna leik
sé í fyrsta leiknum gegn Króatíu
á morgun. Júlíus ætlar að undir-
búa liðið afar vel fyrir þann mik-
ilvæga leik.
„Ég á talsvert af myndefni af
liðinu. Á efni frá því síðasta vor
og svo fæ ég spólur með leikjum
liðsins um helgina en þær spiluðu
gegn Svíum. Við fáum því alveg
ferskt efni og eigum að geta kort-
lagt þær vel fyrir leikinn. Þær
verða tilbúnar í slaginn eftir það,“
segir Júlíus Jónasson landsliðs-
þjálfari. henry@frettabladid.is
Stelpurnar verða tilbúnar
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik kom til Árósa um helgina en á morg-
un byrjar alvaran á EM þegar Ísland mætir Króatíu í sínum fyrsta leik. Stelp-
urnar áttu að spila æfingaleik gegn Spáni í gær en ekkert varð af leiknum.
KOMNAR TIL DANMERKUR Stelpurnar okkar eru komnar til Árósa og hefja leik á EM
annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GOLF Skagamaðurinn Birgir Leif-
ur Hafþórsson fann sig engan
veginn á fyrsta hring á lokaúr-
tökumóti Evrópumótaraðarinnar.
Birgir Leifur lék fyrsta hringinn
á 8 höggum yfir pari og var í næst-
neðsta sæti.
Þá voru um 8 högg í þá menn
sem eru í kringum niðurskurðinn.
Birgir Leifur þarf því að leika ekk-
ert minna en stórkostlegt golf þá
daga sem eftir eru til þess að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn.
Birgir Leifur fékk skolla á fyrstu
holu sem setti svolítið tóninn fyrir
það sem koma skyldi. Hann fékk
tvöfaldan skolla á 4. og 5. braut og
skolla á þeirri sjöttu. Hann fékk
aftur tvöfaldan skolla á 10. braut
og tvo skolla í viðbót áður en yfir
lauk. Hann nældi aðeins í tvo fugla
á hringnum sem taldi 80 högg.
Aðstæður á Spáni voru erfiðar
því það var mikið frost í jörðu og
það riðlaði mikið leik. Birgir Leif-
ur náði ekki að klára nema 15 holur
á laugardeginum og spilaði síðustu
þrjár í gær. Ansi margir kylfingar
áttu þá eftir að klára sinn fyrsta
hring og því tókst ekki að spila
annan hringinn í gær.
- hbg
Birgir Leifur Hafþórsson var í næstneðsta sæti eftir fyrsta hringinn á Spáni:
Birgir Leifur í vondum málum
ERFITT Birgir Leifur náði ekki að fylgja eftir góðri spilamennsku upp á síðkastið um
helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Man. Utd lék ekki um
helgina þar sem heimavöllur
Blackpool var frosinn. Arsenal
nýtti tækifærið og skaust á topp-
inn með sigri á Fulham á meðan
Chelsea mistókst enn og aftur
að klára sinn leik.
Samir Nasri hefur verið í frá-
bæru formi í vetur og hann sá
um að afgreiða Fulham með
tveimur góðum mörkum
og uppskar hrós frá stjór-
anum, Arsene Wenger, eftir
leikinn.
„Mörkin hjá honum voru
frábær og ég gleðst með
honum. Hann hefur bætt
leik sinn mikið og er orðinn
fjölhæfari. Það er að skila sér
til liðsins. Stjóri vill alltaf ná
sem mestu úr sínum leikönn-
um og ég hafði alltaf mikla trú
á Nasri. Það efuðust margir
er ég keypti hann á sínum
tíma en þetta er einstaklega
hæfileikaríkur strákur sem
á eftir að verða enn betri,“
sagði Wenger kátur en Nasri
er búinn að skora 11
mörk í vetur.
Leikmenn Chelsea gáfu frá sér
unninn leik gegn Everton með því
að spila afar illa í síðari hálfleik.
Það var Jemaine Beckford sem
jafnaði leikinn fjórum mínút-
um fyrir leikslok. Carlo Ance-
lotti, stjóri Chelsea, var allt
annað en ánægður með
sína menn eftir leikinn.
„Ég er bæði vonsvik-
inn og reiður og það ekki
bara út af úrslitunum.
Við spiluðum fínan fót-
bolta í fyrri hálfleik en
það var allt annað upp á
teningnum í þeim síðari.
Þá fóru menn allt í einu
að beita löngum sending-
um. Við vorum svolít-
ið hræddir. Ég var ekki
hrifinn af þessu,“ sagði
Ancelotti og bætti við.
„Við erum að vinna í
því að spila ákveðinn
fótbolta og ég skil ekki
hvað er að gerast hjá
okkur. Við verðum að greina vand-
ann og vinna í honum. Ég held það
sé í lagi með einbeitinguna en
við verðum að æfa betur. Það er
ljóst.“
Carlos Tevez kom Man. City til
bjargar enn eina ferðina um helg-
ina og Roberto Mancini, stjóri
City, var ekki par ánægður við
sína menn. „Það má kannski segja
að við höfum verið óheppnir en við
verðum að bæta okkur. Stundum
eru strákarnir of eigingjarnir,“
sagði Mancini. - hbg
Arsenal skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en Chelsea heldur áfram að basla:
Leikmenn Chelsea virðast vera hræddir
VONBRIGÐI John Terry
sneri aftur í lið Chelsea um
helgina en það dugði ekki
til. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
SJÓÐHEITUR Samir Nasri skoraði tvö góð mörk um helgina og skaut Arsenal um leið
á toppinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES