Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1889, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.06.1889, Qupperneq 15
—63— uin orSura a£ þeira Magnúsi Stepliensen og Nellemann. það var í Apríl, aS landshöfSingi brá sér til Kaupmanna- hafnar, og um leið’ fór til lconungs beiðni Pétrs biskups um lausn frá embættinu. „Eg kom, eg sá og eg sigraði“ sagði Júlíus Sesar forðura, og sama gat Magnús Stephensen sagt, Jiegar hann kom heim til Reykjavíkr aftr, því hans kandí- dat fyrir biskupsembættið séra Hallgrímr er útnefndr. Kennimannalýðr Islands veit eldcert um nein biskupaskifti fyr en þau eru komin á, og jafnvel í sjálfri Reykjavík sýnast menn að eins óljúst hafa dreymt um það, að gamli bislcupinn væri að fara frá og landið væri að fá annan nýjan í lians stað, þegar landshöfðingi leggr á stað út yf- ir pollinn með hið fyrirhugaða leyndarráð þeirrar „klikku“ í Reykjavík, er hann heyrir til, biskupsembættinu viðvíkj- anda. Ura leið og Pétri biskupi er veitt lausn er; Hall- grímr prestr útnefndr í oeðsta kirkjulega embætti Islands í mesta kyrrþey þar úti í Kaupmannahöfn, að viðstödduin Magnúsi Stephensen einum svo sem fulltrúa fyrir kristnina í kirkju Islands, ( og svo er konungsinnsiglið, þetta sein leiðandi menn á Islandi allt af öðru hverju er að tilbiðja, sett undir gjörninginn. Frá 25. Maí átti embættistíð hins nýja biskups að byrja, og 30. Maí átti vígsla hans að fara fram í Kaupmannahöfn. Aldrei hefir það eins lítið og nú komið til kasta kirkjunnar á Islandi, livern hún hefði yfir sér sem bisk- up. A hinni sauðsvörtu 17. öld má heita, að biskupar Is- lands væri settir í embætti sín af kennilýðnum íslenzka, og kosningar presta á biskupum þeirra aöj eins staðfestar af konungi. þá var einveldistíð. Nú á Islandi að hafa lleygt svo stórvægilega fram til frelsis og framfara. Og nú, undir lok 19. aldarinnar, er það eiginlega Magnús Stephensen, Islands Scavenius, einn, sem ræðr yíir biskups- stólnum. Ekki einu einasta Reykjavíkrblaðinu verðr að vegi að að koma með neina minnstu athugasemd út af þessari bisk- upsútnefning. Annaðhvort þora þau ekkert að segja, ell- egar þeim iinnst biskupsembættið nú orðið vera svo ómerki- legt og þýðingarlaust fyrir Island og kirkju þess, að alveg standi á saina, hvernig með það stór-„brauð“ er farið. Gamli biskupinn var á seinasta embættisári sínu búinn að lýsa yfir því í einni eða tveim blaðagreinum, að biskups- valdinu hefði greinilega farið aftr í seinni tíð, og það mátti nærri því lesa það á milli línanna hjá honura, að þetta íslenzka biskupsembætti væri ím fariö að þýða ákaf- lega lítið fyrir kirkju og kristni Islands. Og þessu trúa

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.