Sameiningin - 01.07.1889, Síða 32
—D6—
Jiess að ákveða, hvar skólann skyldi byggja. Sýnódan hefur skuldbundið sig
til að reisa skólabygging J>ar, sem kosti 100,000 dollara; af J>eirri upphæö
fær hún þannig $ 25,000 í peningum að gjöf, en $ 75,000 J>arf hún sjálf að
safna til fyrirtækisins. Engum, sem þekkir dugnað þess kiikjufjelags, þykir
efasamt, að það gangi greiðlega. Iíið merkilegasta er, að sama fjelagið er
að koma upp mjög vandaðri bygging fyrir prestaskóla sinn í Minneapolis, og
annari i Sioux l'alls, Dak.; fyrir skóla handa lúterskurn alþýðukennurum.
Laugardaginn 27. þ. m. lagði sjera Jón Bjarnason af stað tíl íslands
rneð konu sinni. J>au komu til Montreal þann 29. um morguninn og fóru
um borð í skip Allanlínunnar, Caspian, um kveklið. Frá Montreal gekk
skipið til Quebec; þaöan skrifuðu þau síðast. Hinir mörgu vinir þeirra og
yflr höfuð allir, sem hafa málefni kirkju vorrar kært, munu fylgja þeim á
þessari ferð þeirra með bænum sínum og blessunaróskum.
F.ins og til stóð (sbr. síðasta nr. „Sam.“ bls. 63) var sjera Hallgrfm-
ur Sveinsson vfgður til biskups yfir Islandi á uppstigningardaginn 30. maf.
Vigslan fór fram með mikilli viðhöfn f Frúarkirkju í Kaupmannahöfn. Dr.
Fog, Sjálandsbiskup, vfgði; danskur prestur, Harald Stein, var vígður um
leið til biskups yfir Fjóni.
Sjera Árni Böðvarsson, uppgjafaprestur á Isafiröi, dó 25. apríl. Sjera
Magnús Jónsson, uppgjafaprestur, er sfðast þjónaöi Grenjaöarstað, andaðist
18. júní síðastliöinn.
Til að bæta ttpp þetta nr. af „Sam., Sem hefur gerðabók kirkjuþingsins
inni að halda, verður gefið út eitt aukanr. af „Sam.“, samkvæmt ráðstöfun
kirkjuþingsins, sem kaupendur fá umfram hið vanalega.
Í3F Hr. Sigurbjörn Sigurjónsson 12 Kate Str. hefur tekið að sjer útsending
„Sam.“. Menn geri þess vegna svo vel að snúa sjer til hans f öllu þvi,
er við kemur útsending blaðsins.
Lexfur fyrir sunnudagsskólann; þriðji ársfjórðungr 1889.
5. lexía, sd. 4. Ág. : Sál kjörinn af drottni (1. Sam. 9, 15—27).
6. lexfa, sd. 11. Ág. : Kveðju-ræSa Samúels (1. Sam. 12, 1—15).
7. lexia, sd. 18. Ág. : Sál hafnað af drottni (1. Sam. 15, 10—23).
8. lexía, sd. 25. Ág. : Davíð smuröur til konungs (1. Sam. 16, 1—13).
B3T Um leið og einhver kaupandi blaðs þessa skiftir um bústað, þá gjöri
hann svo vel, að senda útgáfunefndinni línu um hina breyttu utanáskrift til
hans, svo blað hans verði sent þangaö sem það á að fara.
,,SAMEININGIN“ kemr út mánaöarlega, 12 nr. á ári. Verð f Vestrheimi
$1.00 árg.; greiðist fyrirfram.—Skrifstofa blaðsins: 14 Kate Str., Winnipeg,
Manitoba, Canada.—Utgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Páll S. Bardal (féhiröir),
Magnús Pálsson, Friðrik J. Bergmann, Sigurðr J. Jóhannesson.
l’KENTSMIDJA LÖGBERGS — WINNII'EG.