Sameiningin - 01.03.1891, Síða 19
— Episkop. Meþod. — -lo— 1,705,302, — 2,236,463; 31.16.
— Háþ. reform. kirkj.— 154,742, — 200,000; 29.25.
— Samein. Brœðra — 154,756, — 199,709; 29.16.
— Kongregational. — 382,920, — 491,985; 28.46.
— Uníversalista — 33,572, — 42,952; 27.95.
— Lágþ.reform.kirkj.— 80,208, — 90,000; 12.21.
— Keform. Episkopal.— 10,500, —- [ fækk. 10,100;\ 3.81.
Baptistar eru þannig það kirkjufélag í Bandaríkjunum,
sem á þessum síðasta áratug hefir mest vaxið næst lút-
ersku kirkjunni. En vaxtarmunrinn í þeim tveim kirkju-
flokkum er álcaflega mikill : 64.68 á móti 44.35. það má
margt af þessu síðasta fólkstali í Bandaríkjunum læra í
kirkjulegu tilliti, meðal annars það, að hin andlegu öfl,
sem draga vilja fólk frá kristinni kirkju, eru þó í þessu iandi
ekki nærri því eins sterk eins og þau, er draga menn inn
í kirkjuna. Og er það fyrir alla kristna menn gleðilegt
teikn tímanna. Og sérstaklega er fyrir oss alla lúterska
kirkjuinenn það stór-mikið fagnaðarefni, að vor kirkja skuli
svona mikið vera á undan öllum kristnum kirkjudeildum í
hinu mikla ameríkanska lýðveldi. Hinn íslenzki þjóðflolckr
ætti ekki að þurfa að skammast sín fyrir að heyra lút-
ersku kirkjunni til, þar sem sú kirkja er svona langt á
uudan öllum öðrum kristindómsflokkum í liinu andlega alls-
herjar kapphiaupi.
I Níldalnum hjá Luxor hefir dr. Henry Brugsch, lærð-
asti nútíðarmaðr í egypzkri fornfrœði, árið sem leið fundið
letraðar steinplötur, sem á hinni forn-egypzku tungu segja
frá því, að í samfleytt sjö ár liafl Nílfljót aldrei orðið svo
vatnsmikið, að það liafi getað flóð yfir bakka sína og þann-
ig eigi náð að vökva hið egypzka akrland, og að voðalegt
hallæri og hungrsneyð hafi verið afleiðingin. Sömu stein-
spjöldin hafa líka komið með þá upplýsing, eftir því sem
fornfrœðingrinn, sein fann þau, reiknar lit, að þetta liafi
verið 1900 árum fyrir Krists fœðing, eða um það leyti er
synir Jakohs fluttu til Egyptalands og Jósef hafði þar
landsstjórn á hendi.