Sameiningin - 01.03.1894, Síða 7
—3—
tekiS tólf steina úr árfarveginum, einn stein fyrir hverja ætt-
kvísl þeirra. þessa steina höfðu þeir með sér, og í Gilgal, þar
sem þeir slógu fyrst upp tjöldum eftir að inn í fyrirheitna land-
ið var komiS, reistu þeir þessa steina upp. Hvað merkja þessir
steinar? þeir merkja það, að þjóðin gekk. þurrum fótum yfir
Jórdan. þeir áttu að vera ísraelsmönnum til ævarandi minn-
ingar um það drottins undr, sem hafði hjálpað þeim svona yfir-
náttúrlega )Tfir um ána.
En þeir geta líka haft aðra þýðing fyrir oss, þessir steinar.
Sagan þessi í heild sinni getr á öllum tímum minnt kristna
menn á mjög þýðingarmikinn sannleik, eitt stórkostlegt atriði
í fagnaðarerindi trúar vorrar.
ísraelsmenn urðu að komast yfir Jórdan til þess að ná inn
í sitt fyrirheitna land. í æfisögu frelsara vors Jesú Krists er
nokkuð, sem samgildir Jórdan í sögu ísraelsmanna til förna, þá
er þeir voru á leiðinni til Kanaanslands. það eru kvalir hans
og krossdauði. Píslarsaga Jesú er sú Jórdan, sem hann verðr
að vaða til þess að geta náð takmarki æfisögu sinnar. Hann
verðr í andlegutn skilningi að laugast í móðu dauðans áðr en
hann geti orðið upphafinn til hinnar himnesku dýrðar. En alveg
eins verða lærisveinar drottins að hafa staðið í einhverjum
straumi mótlætis og þrenginga til þess að geta orðið það, sem
þeir upphaflega áttu að verða, orðið miklir og góðir menn, látið
æfisögu sína verða á endanum sér sjálfum til sóma og lærimeist-
ara sínum, hinum mikla stríðsmanni, drottni Jesús Kristi, til
dýrðar.
Nú má sjá, hvað steinarnir, sem Israelsmeun tóku upp úr
Jórdan, geta þýtt fyrir oss. þýðingin er þessi: það er enn þá
unnt, á öllum dögum unnt, jafnvel fyrir ákaflega veikan mann
að komast heilu og höldnu og sigri hrósandi yfir straum mót-
lætisins, yfir sannkallaða móðu dauðans. Og þegar einhver
maðr hefir þannig komizt yfir urn slíka rnóðu, gengið þannig í
gegnum andlega skírn, þá er hann orðinn miklu meiri maðr,
miklu betri maðr, stendr miklu hærra, miklu nær drottni himn-
anna, heldr en áðr en hann lagði út í þessa ófœru. Slíkr reyndr
maðr, maðr, sem komið hefir út úr þvílíkum reynsluskóla, getr
þá samgilt einum þessara steina, er ísraelsmenn tóku með sér
upp úr miðjum farvégi Jórdanar. Karaktér slíks manns er þá