Sameiningin - 01.03.1894, Page 8
—4—
orð'inn fastr eins og steinn, og niaðrinn sjálfr stendr að öllum
líkindum úr því eins og jarðfast bjarg, sem hvergi rótast, úr
hverri átt sem andi aldarfarins blæs yfir bústað hans.
það má, guði sé lof, ekki svo mjög sjaldan sjá slíka fasta
og áreiðanlega karaktéra, menn, sem verðr að skoða eins og jarð-
föst björg, menn, sem alveg óliætt er að treysta til þess að vera
með öllu góðu, menn, sem hin góðu málefni mannfélagsins ávallt
geta byggt á, menn, sem í rauninni eru máttarstólpar undir
mannlegu félagi, menn, sem bera allt það, sem göfugast er í
mannlífi sinnar aldar, sinnar þjóöar, sinnar byggðar, síns safn-
aðar á herðurn sér — bera það með sér hvar sem þeir ganga, —
og koma allt af allra bezt fram, þegar í raunirnar rekr. Só nú
farið að rannsaka, hvernig á þessum mönnum stendr, þá mun
það oftast koma í ljós, að þessir andlegu steinar hafa einhvern
tíma staðið cða legið í miðri Jórdan. Með öðrum oröum: menn
munu komast að raun um, að þessir jarðföstu karaktérar hafa
myndazt í einhverju ströngu stríði, að þeir hafa átt sína ströngu
reynslutíð, gengið í gegnuin andlega eða líkamlega eldraun eða
hvoratveggja í einu, og eru síðan útgengnir úr baráttunni með
þeim andlegum krafti og kjai-ki, sem enginn sá hefir, er ekki hef-
ir viðlíka örlög reynt.
Hver einustu mikilsverð sannindi, öll þau sannindi, sem
eru lífið og sálin í öllum góðum fyrirtœkjum í mannlegu félagi,
Öll slílc sannindi, er hafa hrundið mannkynssögunni áfram, þau
samoálda líka steinunum, sem ísraelsmenn tóku til forna með sér
upp úr Jórdan. 011 slík sannindi hafa verið sótt niðr í Jórdan;
þau hafa verið veidd upp á djúpinu, sótt niðr í straum stríðs og
mótlætis. Sannleikrinn hefir aldrei getað opinberazt hér í
jarðneskum mannheimi. í sinni dýrð og krafti, enginn andlegr
eða siðferðislegr sannleikr að minnsta kosti, fyr en hann í þeim
eða þeim mönnum hefir verið búinn að ganga í gegnum sína
píslarsögu. Enginn mikill sannleikr fæst nema fyrir stríð.
Enginn getr orðið verulega mikill maður nema fyrir stríð. Eng-
inn verulega góðr maðr nema fyrir stríð. Enginn verulega vitr
maðr nema fyrir andlega eldraun. Enginn máttarstólpi fyrir
mannfélagið nema liann hafi einhvern tíma átt heima í miðri
Jórdan. Menn leiti meðal allra mikilmenna mannkynssög-