Sameiningin - 01.10.1898, Blaðsíða 2
—114—
sek ertu líka, þótt miör sé bert;
hér þótt þú gangir ei glœpanna vegiun,
guðs þó í augum þú bersyndug ert.
Mikið þú syndgað og margsinnis hefr,
inikil er sekt þín, ef rétt er að gáð;
miklar þér skuldir upp meistarinn gefr,
mikið því elska þú skyldir hans náð.
4. Drottinn þér svalar á lifandi lindum;
lát hann í staðinn fá iðrunartár.
Drottinn þig laugar af löstum og syndum;
lát hann og afþerra tárvotar hrár.
Drottinn á vistum þig dýrðlegum fœðir;
drag þú ei lengr að mynnast við hann.
Drottinn þig viðsmjöri gleðinnar gœðir;
göfga þú, prísa þú meistara þann.
--------------------*
Bandalagsfundrinn,
sem í fyrra á kirkjuþingi var ályktað að haldinn yrði í sam-
bandi við kirkjuþing þessa árs, var eins og áðr er um gctið boð-
aðr af séra Jónasi A. Sigurðssyni í nafni þingnefndarinnar, sem
siðastliðið ár hafði haft bandalagsmálið með höndum, og hald-
inn í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg þriðjudaginn 28. Júní.
Og stóð það fundarhald yfir frá kl. 9 f. m. til kl. 5 e. m., að und-
anteknu máltíðarhlé eftir hádegi. Fundrinn byrjaði með sálma-
söng og bœnagjörð. Stud. theol. Runólfr Marteinsson flutti
bœnina. Síðan var fundarstjóri kosinn séra Jón J. Clemens og
skrifari Árni Eggertsson.
Öll hin sjö bandalög, sem þegar hafa mynda/.t innan kirkju-
félagsins, höfðu sent fulltrúa til fundarins, og hafði tala þeirra
vcrið miðuð við meðlimatölu i hinum ýmsu bandalögum. En
þessir voru fulltrúarnir: séra Björn B. Jónsson, Ó. G. Anderson
og ungfrú Matthilda Westdal fyrir bandalag St. Pálssafnaðar í
Minneota; Brandr J. Brandsson og Jón K. Ólafsson fyrir banda-
lag Garðar-safnaðar; Runólfr Marteinsson fyrir bandalag þing-
vallasafnaðar; Guðjón Guðvaldsson og Jón þórðarson fyrir
bandalag Yídalínssafnaðar; Árni Eggertsson, Halldór S. Bardal,