Sameiningin - 01.10.1898, Blaðsíða 4
—116—
III. Trúarjátnimj.
Trúarjátning bandalagsins er liin sama og kirkjufélagsins.
IV. Tilgangr félagsins,
Tilgangr þessa félags er :
1. Að styðja að því, að unglingafélög (bandalög) komist á í öllum
söfnuðum kirkjufélags vors, þar sem unnt er að koma því við.
2. Að beina unglingafélagsskapnum í rétt horf með því að rœða
hin ýmsu bandalagsmál á fundum félagsins.
3. Að hvetja meðlimi bandalagsins til ötullar starfsemi í kirkju-
og safnaðar-málum.
4. Að efla og styrkja bröðurlega eining og samvinnu hinna ýmsu
bandalaga í söfnuðum kirkjufélagsins.
V. Meðlimir.
§1. 011 bandalög í söfnuðum kirkjufélagsins, sem samþykkja þessi
lög, eru meðlimir félagsins; þö því að eins, að engu öðru fölki en því,
er heyrir kirkjufélaginu til, sé hór eftir veitt þar innganga, og ekkert í
heimalögum þeirra sé í ösamrœmi við þessi sambandslög.
§ 2. Hvert félag, sem beyrir bandalaginu til, hefir rétt til að senda
einn erindsreka á ársfund fyrir hverja 50 meðlimi eða þar fyrir innan;
þö má ekkert félag senda fleiri en 3 erindsreka.
VI. Fundir.
Bandalagið skal halda fundi ár hvert í sambandi við ársþing
kirkjufélagsins, á þeim tíma, sem forsetar bandalagsins og kirkjufé-
lagins koma sér saman um.
VII. FmbœUismenn.
§ 1. Embættismenn félagsins eru: forseti, varaforseti, skrifari, vara'
skrifari, féhirðir og varaféhirðir.
§ 2. Skyldur embættismanna eru þær sömu og almennt gjörist í fé-
lögum.
§ 3. Embættismenn skulu vera kosnir á hverjum ársfundi.
VIII. Framkvæmdarnefnd.
Þessi nefnd samanstendr af embættismönnum bandalagsins. Hún
á að undirbúa mál þau, sem koma eiga fyrir ársfund bandalagsins.
IX. Lagabreytingar.
Sé um grundvallarlagabreyting að rœða, þá nær hún gildi, ef
hún er samþykkt af | þeirra, er rnœtt hafa á ársfundi bandalagsins; en
þö því að eins, að breytingin liafi verið borin upp á næsta ársfundi á
undan.
Frumvarp þetta var breytingarlaust samþykkt í einu hljóði.
Skýrslur um hin ýmsu bandalög
safnaðanna, myndan þeirra, starf og framfarir, voru því næst
lagðar fram á fundinum.—Lang-fjölmennast var bandal. Fyrsta
lúterska safnaðar í Winnipeg, með 164 meðlimi, en fámennast
bandalag Argyle-safnaða, með 20 meðlimi, enda var það þá alveg