Sameiningin - 01.10.1898, Síða 13
—125—
við þessa breyting, að menn úr hinum i'jarlægari héruðum myndi
eigi sjá sér fœrt að sœkja prestastefnuna upp á eigin kostnað.
Og hvar ætti þá að hafa upp fé í þessu skyni ? það myndi að
minnsta kosti þurfa um 3000 krdnur árlega, og að eins nokkurn
part af þeii’ri upphæð myndi alþing verða fáanlegt til að veita
úr landssjóði. Eini vegrinn væri, að þeir landsmenn, sem helzt
væri kirkjunni hlynntir, tœki að sér að standast þennan kostn-
að. — það er meiri kirkjulegr áhugi á Islandi en vanalega er
gengið út frá, ef menn svona á frjálsan hátt fást til að leggja
þetta á sig. þetta myndi naumast fá framgang, En þar á móti
mætti hjálpa málinu við ú annan hátt. það þarf ekki endilega
allt af að halda þessa prestastefnu á sama stað — í höfuðstaðn-
um Reykjavík. það væri miklu skynsamara að halda hana sitt
árið í hverjum landsfjórðungi eða til skiftis í hinum ýmsu aðal-
héruðum landsins. Og þá gæti menn ferðazt þangað algjörlega
upp á eigin býti — engu síðr en nú úr hinum fimm prófasts-
dœmum til Reyk javíkr. Auðvitað myndi samkoman þá lang-
bezt verða sótt úr þeim héruðum, sem næst lægi fundarstaðnum-
En það jaínaðist viðunanlega við það, að árlega væri skift um
stað fyrir fundarhaldið. Með því móti yrði synodus fyrir allt
landið og ætti að geta orðið kirkjulífinu víðsvegar um land til
miklu meiri uppvakningar og stuðnings en búast má við með
því fyrirkomulagi, sern nú er. En auðvitað ætti ekki að eins
að hugsa um það, að fá prestana á þetta íslenzka kirkjuþing,
heldr líka kjörna erindsreka úr hópi leikmanna, að minnsta
kosti eins marga og prcstvígðu mennina, sem þar ætti sæti.
í Sauðárkrók
héldu prestarnir í Skagafjarðarsýslu og Húnavatnssýslu kirkju-
málafuud 8. og 9. Juní í sumar, sem talsverða athygli sýnist
hafa vakið víðsvegar um land. 16 prestar voru þar sarnan
komnir. það stóð til, að prestarnir í Eyjafirði yrði þar með;
en af því varð eklci. Séra Sófónías Halldórsson, prófastr Skag-
firðinga, var kjörinn fundarstjóri og flutti hann áðr prédikan í
Sauðárkróks-kirkju út af þrem versum í 10. passíusálminum
(11.—13.: „þú, guðs kennimann, þenk um það: þar mun uin
síðir grennslazt að, livernig og hvað þú kenndir“ o. s. frv.). Eitt