Sameiningin - 01.12.1898, Síða 9
—153
umkverfis, berskjalda fyrir hinum banvænu skeytum—ogdeyr
Kristi, er ljósið ha.n slokknar.
Ó, elskulega barn, glata þá ekki þessu, sem þér var gefið til
að varðveita með þitt eigið líf. Mundu, að það er hann, sem er
frelsari þinn. þú, synduga mannsbarn, átt að vera frelsinginn.
þú, sem átt í stöðugu stríði við dauðann, gleym þá ekki, að varð-
veita æfi-kertið þitt, svo að þú deyir ekki.
Trúarsamtalsfundir
voru í Nóvember haldnir í nokkrum söfnuðum kirkjufélagsins.
þeir séra Friðrik J. Bergmann og séra Jónas A. Sigurðsson,
prestar íslenzku safnaðanna í Norðr-Dakota, og séra Jón J. Cle-
mens, prestr Argyle-safnaða í Manitoba, komu til Winnipeg
þriðjudaginn 15. Nóv., og fóru svo næsta dag ásamt með rit-
stjóra „Sam.“ norðr til Selkirk til þess að taka þátt í þannig
löguðu fundarhaldi með fólki safnaðarins þar. Var svo ráð fyrir
gjört, að hafa í þetta skifti samtalsfundi í fimm söfnuðum, tveim
hér nyrðra (í Manitoba) og þremr fyrir sunnan (í Dakota), byrja
í Selkirk, og hafa allsstaðar sama umrœðuefni. Og þessari hugs-
an var framfylgt. Umrœðuefnið, sem til var tekið, var: sannr
kristindómr. því miðr gátu að eins þessir fjórir af prestum
kirkjufélagsins sótt fundina. Prógrammið varð nokkuð síðbúið,
varð til f flýti eftir að séra Jónas A. Sigurðsson var heim kom-
inn úr sinni Islandsferð. Séra Oddr V. Gíslason var um þaér
mundir á ferð vestr í landi, svo til hans varð eigi náð. Séra
Björn B. Jónsson á mjög ervitt með að sœkja fundi hér í norðr-
byggðum sökum vegalengdar. Og séra Steingrímr N. þorláks-
son, sem ákveðinn var í að sœkja fundina í Dakota-söfnuðunum,
varð fyrir meiðsli í auga einmitt um það leyti, er þeir fundir
voru haldnir, og gat því með engu móti komið.
Samtalsfundrinn í Selkirk var haldinn að kvöldi miðviku-
daginn 16. Nóv. í kirkju safnaðarins þar, og síðan var honum
haldið áfram um stund næsta dag. Séra Jónas A. Sigurðsson
leiddi þar málið inn á fund, og sömuleiðis prédikaði hann við
guðsþjónustu, er þar var haldin á undan umrœðunum að morgni
hins síðara dags. Prédikunartexti hans var 1. Kor. 4, 20: „því
guðs ríki er ekki fólgið í orðum, heldr krafti". — Að kvöldi