Sameiningin - 01.12.1898, Síða 10
sama dags, 17. Nóv., var samtalsfundr haldinn í Fyrstu látersku
kirkju í Winnipeg, og hélt séra Friðrik J. Bergmann þar inn-
gangsrœðuna. Næsta dag fóru hinir fjórir prestar suðr til Akra
í Norðr-Dakota, þar sem séra Jónas á heima, og daginn á eftir,
laugardaginn 19. Nóv., voru þeir ó fundi í Vídalínskirkju þar í
grenndinni með fólki þess safnaðar. Séra Jón Bjarnason leiddi
málið þar inn á fund. Á undan þeim fundi fór fram guðsþjón-
usta; prédikaði séra Jón J. Clemens þá og hafði fyrir texta sög-
una um lækning limafallssjúka mannsins f Matt. 9, 1—8.
Sunnudaginn 20. Nóv., sfðasta sunnudag kirkjuársins, pré-
dikuðu hinir aðkomnu prestar í prestaköllum þeirraséra Friðriks
og séra Jónasar: séra Jón J. Clemens í kirkju þingvallasafnaðar
á Eyford og séra Jón Bjarnason í kirkju Vídahnssafnaðar. Á
hinum sfðarnefnda stað var flutt reformazfónarprédikan út af
Jóh. 1, 44—47 og Róm. 3, 28, og var við þá guðsþjónustu fólk til
altaris.
Tvo næstu daga voru sömu prestarnir á samkomurn, sem
kvenfélög safnaðanna á Mountain (Víkrsafnaðar) og Garðar
héldu: rnánudaginn á Mountain og þriðjudaginn á Garðar. þó
að veðr væri þá fyrir alvöru tekið að harðna, var merkilega
margt fólk á hvorumtveggja staðnum saman komið. Aðal-núm-
erið á prógrammi beggja samkomanna var rœða, sem séra Jónas
flutti út af komu sinni til íslands á sfðastliðnu missiri. Sam-
koman á Garðar var haldin í félagshúsi einu miklu og vönduðu,
sem nýlega hefir reist verið skammt frá kirkjunni.
Á miðvikudaginn, 23. Nóv., var trúarsamtalsfundr á Moun-
tain í kirkju Víkrsafnaðar. Við guðsþjónustu á undan prédik-
aði séra Jónas A. Sigurðsson út af orðunum: „Sjáið manninn !“
(Jóh. 17, 5). Satni prestr hélt og inngangsrœðuna á þeim sam-
talsfundi. — Næsti dagr, flmmtudagrinn, hinn 24., var dagr sá,
er ákveðinn hafði verið til allsherjar þakkargjörðar fyrir bjarg-
ræði og blessan sumarsins liðna bæði í Bandaríkjunum og Cana-
da. SUk guðsþjónusta var þá lika haldin í kirkju Garðarsafn-
aðar þann dag, og prédikaði séra Jiin Bjarnason þá og lagði út af
þessurn tveim ritningar greinum: „S:á, nú er hin œskilega t'ð; sjá,
nú er dagr hjálpræðisins“ (2. Kor. (i, 2) og: „Hagnýtið túnann, því
að nú eru hættulegir t'mar“ (Efes. 5, 16). Á samtalsfundinum,