Sameiningin - 01.12.1898, Qupperneq 11
155—
sem haldinn var á eftir þeirri guðsþjdnustu, hélt séra Jónas A.
SigurSsson inngangsrœðuna.
Að kvöldi næsta dags, 25. Nóv., voru hinir i'jórir prestar enn
allir staddir á fjölmennri kvenfélagssamkoinu, er haldin var í
kirkju Yídalínssafnaðar. Og þar kom séra Jónas A. Sigurðsson
enn með langa og fróðlega rœðu út af því, sem hann sáog heyrði
á íslandi.
Daginn eftir hélt ritstjóri „Sam.“ heim til sín norðr til
Winnipeg ásamt séra Jóni J. Clemens, sem að kvöldi sunnu-
dágsins 27. Nóv., fyrsta sunnudags í aöventu, prédikaði fyrir
hann í Fyrstu lútersku kirkju og tók hann og nokkra aðra safnað-
árinenn til altaris. Á mánudag, 28. Nóv., hélt séra Jón Clemens
heimleiðis vestr í Argyle-byggð.
Allir samtalsfundirnir voru vel viðunanlega sóttir eftir því,
sem á stóð, — sumir ágætlega. Bein hluttaka leikmanna í rœðu-
höldunum var sumsstaðar fremr lftil. En j-fir höfuð að tala leit
út fyrir, að almenningr væri ánœgðr með fundahöldin. Og eng-
inn vafi er á því, að þau hafa vakið hjá mönnum margar nýjar
og nytsamar hugsanir um kristilega trú og kristilegt 1 f. Einna
bezt fannst oss samtalsfundrinn í Vídalfnskirkju heppnast. þar
tóku flestir leikmenn til máls.
Sannr kristindómr.
þetta var, eins og þegar hefir verið um getið, efniö,, sem
menn höfðu til umrœðu á þessum síðustu trúarsamtalsfundum
vorum. það var að einu leyti valið rneð tilliti til þess, að það er
svo afar víðtœkt, svo víðtœkt, að það nær út yfir öll kristileg
trúarmál, öll inal, sein snerta hinn kristilega siðalærdóm, öll hin
miklu sáluhjálparmál og framfaramál, sem kirkja Jesú Krists
hefir meðferðis. Lægi þeim eða þeim safnaðarlimnum eitthvað
sérstakt á hjarta, snertanda kristna trú eða kristilegt líf, sem
hann vildi fá skýring á eða vekja athygli að öðrum til uppbygg-
ingar, þá var auðsætt, að því mætti korna að við trúarsamtal út
af þessu efni: sönnum kristindómi. Allt slíkt heyrði að sjálf-
sögðu því víðtœka umrœðuefni til. Enda reyndist það einmitt
s.’o á samtalsfundum þessum, að hreift var við mörgum atriðum
í trúarlífi kristinna einstaklinga og hinu kirkjulega féjagslífi.