Sameiningin - 01.12.1898, Page 14
—158—
Vert er að minna á þaft, eins og líka var gjört á samtals-
fundumum, að menn geta lifað og lifa einatt ósönnu kristin-
dómslífi, lífi hrœsninnar og faríseaháttariqs, án þess sjálfir að
vera sér þess meðvitandi. þannig var ástatt fyrir faríseunum
gyðinglegu til forna. Og þannig einnig fyrir lýð páfakirkjunn-
ar almennt á reformazíónartíðinni. Hvorirtveggja lýðirnir þótt-
ust vera góðir og gjöra guði þægt verk, er þeir börðust gegn
málefni guðs ríkis. Að hrœsna fyrir sjálfum sér er mjög háska-
leg hrœsnistegund.
þegar menn hugsa um þetta háleita mál, sannan kristindóm,
þá muni allir eftir fjallrœðunni frelsarans, einkum þó þessum
orðum, sem öllum kirkjunnar mönnum ætti að vera ógleyman-
leg: „Ekki munu allir þeir, sem til mínsegja: ,herra, herra,‘
koma í himnaríki, heldr þeir einir, sem gjöra vilja míns himn-
eska föður.“
Ómögulega má gleyma kvöldmáltíðarsakramentinu, þegar
um sannan kristindóm er að rœða. Drottinn hefir alveg vafa-
laust gefið lærisveinum sínum það náðarmeðal meðfram og
einna helzt til þess, að þeir með því gæti prófað sinn kristindóm.
í rauninni er nákvæmlega hið sama fólgið í þeirri sakramentis-
gjöf eins og liggr í fagnaðarboðskap kristindómsorðsins. En í
kvöldmáltíðarsakramentinu er hið víðtœka, yfirgi-ipsmikla inni-
hald guðs orðs af Jesú sjálfum dregið saman í einn punkt.
Miðpunktr kristindóms-opinbeiunarinnar er þar. Hjarta hins
frelsanda kærleika. Kristr veitist þar allr öllum, eins og tekið
er fram í hinum gamlaoggöfuga skírdagssálmi í sálmabók vorri.
V ilt þú nú, maðr, sem telr þig kristinn, halda þér andlega föstuin
við þennan miðpunkt opinberunarinnar ? halla þér andlega að
þessuhjarta? — spyr drottinn í og með sakramenti þessu. Og
þá ætti allir með sönnum kristindómi, eða sem vilja eignast sann-
an kristiadóm,*>hiartans fegnir að vilja vera iðulega til altaris.
Kvöldmáltíðarsakramentið dœmir hálfkristindóminn allan ræk-
an úr kirkjunni.
Biblíusögur
-Tangs, sém fyrir þrettán árum voru gefnar út í íslenzkri þýðing eftir
séraJóliann Þorsteinsson, eru nýkomnar út í Reykjavík, auknar og
endrsamdar af séra Jðni Helgasyni, prestaskólakennara. I hinni eldri