Sameiningin - 01.03.1902, Blaðsíða 6
2
ei herra sá
þeim björgum einnig bylta frá ?
5. Oss finnst á vetrum frost og snjár
sé farg, sem undir liggi nár.
En blessuö sumar-sólin há
oss send er þá
og bjargi þessu byltir frá.
6. Oft þíöir döggin þela’ í jörð,
en þó er gröf svo köld og hörð,
að vor ei tár fá unnið á
þeim ís og snjá;
en drottins tára-dögg það má.
7. Hann oft lét blindra augu sjá,
hvort eigi mun hann geta þá
af þerrað tár af þeirri brá,
sem þau eru’ á,
sú lífsins sólin hrein og há?
Loftið þrungið af kærleika.
Föstu-hugleiðing eftir séra N. Steingrím ÞorlákssoN.
Gott er að vera í góðu lofti. Það er svo hressandi. Og
sá, sem vesall er, getr orðið heilbrigðr þar. Þetta vitum
vér öll.
En hvaða loft er betra, meir hressandi og lífgandi bæði
fyrir sál og líkama, en þar, sem kærleikrinn er? Vér finnum
öll til þess, hvað blessað loft það er. Og öll þráum vér að
vera í því og anda því að oss.
Vér erum oft að flytja oss til þess að komast í betra og
hollara loftslag. En ef vér gætum flutt oss inn í kærleiks loft!
Átt þar svo heima. Andað því að oss. Fengið kærleikann
svo inn í blóðið og hjartað. Ó, hvað líf vort myndi grœða
á því!
Um þetta efast naumast neinn. Því þrátt fyrir allar efa-