Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1902, Side 13

Sameiningin - 01.03.1902, Side 13
9 um ÖSrnm, sem eftirrit tók af guðspjallinu, út á spá'zíunni til skýringar, og síöan hafi það komizt inn í textann. En hvor- ug getgátan er nauðsynleg. Matteus guðspjallamaðr getr \el hafa litið svo á, að spádómrinn hjá Sakaríasi sé svo að kalla fœddr út af hinu verklega líkingarmáli í spádómsbók Jeremí- asar, sem hér á undan hefir verið bent á og að nokkru leyti útskýrt. Þetta verðr enn sennilegra, þegar menn hafa að því gætt, að víða annarsstaðar í bók Sakaríasar er borinn fram drottinlegr boðskapr, sem bæði að efni og orðalagi augsýni- lega á rót sína að rekja til ýmislegs spádómsmáls í bók Jere- míasar. Og svo er enn fremr að því að gæta, að spádómr- inn, sem Matteus kemr með og segir að rætzt hafi, þá er ályktað var að kaupa leirkerasmiðsakrinn fyrir blóðpeningana, stendr engan veginn orðréttr í bók Sakaríasar. Fjórða vers hins umrœdda passíusálms hljóðar svo: ,,Líkist leirkerasmið líknsamr drottinn við, sem Esajas fyrr sagði, sjálfr það rétt út lagði. “ Hér er sálmaskáldið að hugsa um þessi orð í spádómsbók Esajasar (64, 7); ,,En nú, drottinn, þú ert vor faðir; vér er- um leirinn; þú ert sá, sem myndaðir oss; allir erum vér þín handaverk. “ En að því er kemr til útleggingarinnar á þess- um orðum í 5. v. sálmsins, þá vakir þar fyrir skáldinu það, er stendr í 9. kap. Rómverjabréfsins (9, 20—23): ,,Mun leir- kerið segja við þann, er bjó það til: Hví bjóstu mig svona til? Eða á ekki leirsmiðrinn ráð á leirnum, svo hann megi gjöra úr sama deigi annað kerið til sœmdar, en hitt til van- sœmdar?“ o.s.frv. Þetta er inngangr til meginmálsins í passfusálminum, sem byrjar með sjötta versinu. Þá birtist gullið, sem hann sjálfr beinlínis grefr upp úr námu textans. ,,Drottinn einn akr á, er honum falr sá; minnstu, hann miskunn heitir, mœddum lýð huggun veitir. “ Leirkerasmiðsakrinn lætr skáldið tákna miskunn guðs eða

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.