Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1902, Side 18

Sameiningin - 01.03.1902, Side 18
4 Fyrst skal eg minna á það, aS vér erum ekki lengr ,, grœnir ‘ ‘ útlendingar hér í landi. Allar helztu byggöir vorar hafa tekið upp hérlent snið og vér erum farnir að hugsa, tala og starfa eins og innlendir menn. Vér snúum æ meir faðm- inum að þessu nýja fóstrlandi voru og líkjumst í öllum hlut- um æ meir samborgurum vorum hér. Vér getum því ekki hér eftir haft full not af neinum þeim starfsmanni, sem ekki er hérlendr í hugsunarhætti og starfsmáta. Allsstaðar í bœjum og víöast hvar í landsbyggðunum þurfa prestar vorir að vera vel að sér í tungumáli landsins, enskunni, og í nálægri framtíð verðr þaö hvervetna, að kennimaðr safnaðarins má til að vera því vaxinn að prédika jafnt á ensku sem íslenzku. Svo er annað, sem þarf að taka til greina. Safnaðarlíf vort hér er fríkirkjulegt að fyrirkomulagi. Og í fríkirkjunni í Vestrheimi er allt fyrirkomulag og öll starfsaðferð svo ólík því, sem er í þjóðkirkjunni á Islandi, að prestar, sem vanizt hafa eingöngu fyrirkomulagi þjóðkirkjunnar, gæti engan veg- inn orðið að fullkomnu liði í söfnuðum vorum — eins og líka að þeir prestar, sem vanir eru fríkirkjulega fyrirkomulaginu hér, ekki myndi geta notið sín í þjóðkirkjunni. Og svo er enn eitt. Ef dœma má um anda þann, sem býr í prestaskóla Islands og ásýnd hans í blaði prestaskóla- kennarans, ,,Verði ljós!“,— eins og það blað hefir verið í seinni tíð—, þá er mjög vafasamt, að prestlingar frá Reykja- víkr prestaskóla geti fengið inngöngu í kirkjufélag vort. Með löggjöf frá kirkjuþingi árið 1893 er fyrirskipað, að allir þeir, sem um prestsembætti sœki innan kirkjufélags vors, skuli vera prófaðir og skuli þeir gjöra grein fyrir sinni kristilegu trú- frœði. Nú þarf enginn að láta sér detta í hug, að nokkur guðfrœðingr kœmist gegn um það próf og fengi mótmælalaust inngöngu í kirkjufélag vort, sem t. a. m. fylgdi stefnu hinnar ,,hærri kritíkar“ og vefengdi það guðs orð, sem hann þó á að skuldbinda sig til að kenna. Já, tímarnir hafa breytzt og margra hjartans hugrenn- ingar hafa líka orðið opinberar á síðustu tíð, svo vér erum nú farnir að sjá, að vér ekki megum sœkjast eftir prestum frá

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.