Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1902, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.03.1902, Blaðsíða 20
oftast niörstaðan sú, að skólagengnir menn kjósa sér þær lífs- stööurnar, sem betr eru launaðar, einkum þegar þess er þá líka gætt, að verk prestsins í íslenzku nýlendunum er afar öröugt. Víðast hvar eru margir söfnuðir í prestakalli og þar af leiðanda margfalt verk og sífellt ferðalag fyrir prestinn. Kjör prestsins eru að sönnu sumsstaðar að batna, einkum að því er launin snertir. En þetta hefir nú svona verið víðast. Og ætíð verðr það til að aftra ungum og efnilegum mönnum frá því að verða prestar, ef þeir vita, að prestrinn fær minni laun en aðrir embættismenn, minni laun en margir bókhald- arar og búðarsveinar, ef þeir sjá, að prestrinn er verr hýstr, verr klæddr og verr fœddr en aðrir menn. Vér fáum aldrei góða presta nema vér getum borgað þeim sœmileg laun. Og stundum eru þessi litlu laun prestanna greidd með eftirtölum. Læknum, lögmönnum og embættismönnum ríkisins er venju- lega möglunarlaust borgað fyrir sín verk, en laun prestsins eru oft klipin undan nöglum. Auðvitað á þetta sér ekki lengr stað í gömlum prestaköilum, en þetta heyrðu og sáu ungir menn, og sé nokkuð fráfælanda fyrir röska og sjálfstœða menn, þá er það einmitt það að vera álitnir hálfgjörðir ölm- usumenn. Báðar þessar orsakir eru nú að verða léttvægari. Prest- arnir eru nú ekki lengr ofsóttir og kjör þeirra, bæði að því, er laun og annað snertir, fara batnandi. Það ætti því að vera miklu aðgengilegra hér eftir en að undanförnu að gefa sig við prestskap hjá íslendingum. (Niðrl. næst.) Hr. G. S. Haller við Cuba-pósthús í Nebraska hefir nýlega sent kirkjufé- lagi voru að gjöf $5.00 í missíónarsjóð þess. Enn fremr hefir sami maðr nýgef- ið bókasafni kirkjufélagsins: Seventh-Day Adventism Renounced by D. M. Canright. Grand Rapids, Mich. 1889. Hr. Ólafr S. Þorgeirsson, 644 William Ave., Winnipeg, ei féhirðir .,Sam.“. ,,VERÐI LJÓSl“—hið kirkjulega mánaðarrit þeirra séra Jdns Helfíasonar og Haralds Níels- sonar í Reykjavík—til sölu í bókaverzlan H. S. Bardals í Winnipeg og kostar 60 cents. ,EIMREIÐIN“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á íslenzku. Ritgjörðir, mynd- ir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. hvert hefti. Fæst hjá H. S. Bardal, J. S. Bergmann o. fl. ,,ÍSAFOLD“, lang-mesta blaðið á íslandi, kemr út tvisvar í viku allt árið; kostar í Ameríku 81.50. H. S. Bardal, 557 Elgin Ave., Winnipeg, er útsölumaðr. ,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 númer á ári. Sunnudagsskólablaðið ,,Kenn- arinn“ fylgir með ,,Sam.“ í hverjum mánuði. Ritstjóri ,,Kennarans“ er séra N. Stein- grímr Þorláksson, West Selkirk, Man. Árgangsverð beggja blaðanna að eins $1; greiðist fyrirfram.— Skrifstofa blaðsins: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba, Canada,— Útgáfunefnd: Jón Bjarnason, (ritstj.), Friðrik J. Bergmann, Ólafr S. Þorgeirsson, Bjö'rn B. Jónsson, N. Steingrímr Þorláksson. Prentsmiðja Lögbergs. — Winnipeg.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.