Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1902, Page 2

Sameiningin - 01.08.1902, Page 2
82 aÖ vera vínnandi vegr. Enda verör hann meö. Og þaö verðr hann, sem kemr því til leiðar, að hið ómögulega verðr mögulegt. I trausti til hans, en ekki sjálfra vor, eigum vér að leggja á stað og vinna verkið og vinna sigr. I trausti til hans, þeirri fullvissu, að hann væri með þeim og verkið væri hans, átti aðal-styrkleiki þeirra að vera fólginn, og undir því komin velgengni þeirra öll og framtíðar- von, að hann yrði með þeim. Þetta áttu að vera aðal-fjárráð þeirra til allra framkvæmda í þjónustu guðs ríkisins, sem þeir voru kallaðir til að vera starfsmenn fyrir. Það sést greinilega í upphafi hinnar kirkjulegu starfsemi, hver vilji drottins var. Starfsmenn hans áttu að starfa full- vissir um það, að hann væri með; því hann hefði ’neitið því. Verkið væri hans. Þeir að eins starfsmenn hans, kallaðir til verksins af náð. Honum ætti þeir að treysta einum. Mætti ekki treysta öðru. — En þá máttu þeir aldrei gleyma, að verkið var hans, en ekki þeirra, og að þeir ætti að vinna að því eins og hann vildi. Hin sama frumregla birtist í upphafi sfarfseminnar undir gamla sáttmálanum. Þá lýsti guð yfir því við hina útvöldu starfsmenn sína, hver ætti að vera fjárráð þeirra til starfsins, starfslögmálið, sem það væri háð. Þegar drottinn krefst þess af Abraham, að hann fórni syni sínum, þá vill hann með því kenna honum að treysta guði, en ekki barninu sínu. Abraham hefir verið hætta búin af því að láta framtíðarvonir sínar fléttast utan um einkason sinn Isak, í stað þess að guð fyrirheitisins átti að vera upphaf og endir allra vona hans. Eins, þegar drottinn birtist Jakob á leiðinni heim til Kanaanslands úr útlegðinni í Mesopotamíu. Jakob hafði treyst kœnsku sinni, er hann hafði af bróður sínum blessan föður þeirra. Hann treysti líka í þetta skiftið ráðsnilld sinni, þegar hann var að bœgja í burtu frá sér reiði bróður síns, svo hann gæti komizt aftr inn í land fyrirheitisins. Við þetta tœkifœri vildi nú drottinn með glímunni, sem allir muna eftir, minna Jakob eftirminnilega á það, hvernig hann hefði verið að glíma við guð um dagana, beitt brögðum og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.