Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1902, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.08.1902, Blaðsíða 12
92 sátu, fóru þaban eflaust meS þá sannfœring í hjartanu, að bœnin er ómissandi fyrir trúarlífið, að hún er ekki sönn nema því að eins að það sjáist af orðum vorum og verkum, að vér erum ,,menn bœnarinnar11. Starfsemi vor er árangrslaus, hefir ekkert sáluhjálpargildi, séum vér eigi hvattír til að vinna í drottins nafni. Vér verðum að komast inn í ,,heim bœnar- innar“ til að geta unnið þau verk, sem guð hefir velþóknan á. Bœnrœknin glœðir starfsemi. Bœnrœknir menn eru ætíð starfsamir menn. Samþykkt var á þinginu að fela stjórnarnefndinni á hendr að ráða General Secrctary, sem á að verja öllum sínum tíma í þjónustu bandalagsins. Hann á að ferðast um landið þvert og endilangt til að styðja og styrkja félagskapinn og vinna að útbreiðslu hans um land allt. Einnig var samþykkt að gefa út lúterskt almanak, sem á að minna oss á hverjum degi á einhvern atburð í sögu kirkju vorrar, er gefr oss tilefni til að þakka guði og biðja fyrir. I Janúarmánuði t.d. er minnzt á stofnan kirkjufélags vors hins ísh, og er til þess ætlazt, að á fœðingardegi þess verði beðið fyrir því og verkinu mikla og vandasama, sem það hefir tekizt á hendr, af öllum trú- brœðrum vorum hér í landi. — Allsherjar bandalagið gefr einnig út á hverjum ársfjórðungi rit, sem kallað er Luther League Topics. Rit þetta flytr fyrir hverja viku á árinu, með útskýring, umtalsefni, sem rœdd eru á bandalagsfundum. Umtalsefnið fyrir eina vikuna í Des. 1904 verðr: Trúboðið meðal Islendinga, Dana og Finnlendinga. Er þeim, er þetta ritar, falið á hendr að rita um það efni í L. L. Topics. — Luther Lcague Review heitir málgagn bandalagsins. Er það mjög snotrt mánaðarrit með myndum. Árgangrinn kostar að eins 50 c., og fæst jafnvel með lægra verði, þegar margir á- > skrifendr senda inn nöfn sín í einu til ritstjórans, Mr. E. F. Eilert í New York. Hver bandalagsmeðlimr ætti að kaupa og lesa L. L. Review. Eg vona, að ísl. bandalagið sendi fulltrúa á næsta þing L. L. of Amcrica, sem haldið verðr í Buffalo, N. Y., 1904. Jón J. Clemens. Red Wing, Minn., 14. Júlí 1902.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.