Sameiningin - 01.08.1902, Side 7
87
verjabréfinu, er einmitt í innsta eðli sínu náskylt málinu um
,,kritíkina“. Skoöanirnar þröngsýnu á fœöunni og dögun-
um, sem þar er viö átt, voru gyöinglegs uppruna, náknýttar
viö gamla testamentið, þaöan komnar inn í kristna söfnuði.
Og úr sömu átt eru einnig skoöanirnar á því helga ritsafni,
sem öld eftir öld hafa veriö ráöandi í kristinni kirkju. A
gamla testamentið í heild sinni leit Jesús á dögum hinnar
jarönesku holdsvistar sinnar sem guöinnblásiö orö, alveg eins
og hver annar rétt-trúaör Gyðingr þeirrar tíöar. Sennilegt,
aö kirkjan hans fylgdi honum í þeirri skoöan, eins og hún líka
vitanlega hefir gjört allt fram á þennan dag. En nú koma
þessir spekingar fram og segjast hafa fengið vísindalegar
sannanir fyrir því, að þær gömlu skoðanir, sem hér er um að
rœða, sé rammskakkar. Látum vera, að þeir kynni þar að
hafa rétt fyrir sér. En myndi þeir ekki, svo framarlega sem
trúin á hina guðlegu persónu Krists er þeim hjartanlegt al-
vörumál, þurfa aö fara gætilega meö þær kenningar? Myndi
þeir mega búast viö því, aö lj-’ðr kirkjunnar fengi hindrunar-
laust aöhyllzt þessar nýju kenningar án þess aö bíöa af því
neitt verulegt tjón í trúarlegu tilliti ? Myndi ekki hér fullt
eins hætt við hneykslunum í kristninni eins og foröum út af
sannleikanum viðvíkjandi fœðunni og dögunum, sem postul-
inn talar um ?-—Hr. E. H. talar óheppilega og illa um það
að hneyksla aöra. En það stafar líklega af því, að hann
skilr ekki þetta orö — aö' hneyksla, eða að minnsta kosti leggr
í það allt aöra merking en eg hefi gjört í þeim greinum mín-
um um ,,kritíkina“, sem hann er aö mótmæla. Að setja
fyrir menn fótakefli, svo þeir hrasi í andlegum skilningi, falli í
synd—það er hin kristilega trúarmerking orðsins að hneyksla.
Og í þeirri merking hefi eg notað það. En sú synd, sem
mér finnst hætt viö, að menn, kristnir menn, falli í út af
kenningunum nýju um biblíuna eins og þær hafa fluttar verið
af séra J. H. og fleirum, er synd vantrúarinnar, aðal-syndin í
heiminum aö dómi drottins Jesú sjálfs. Hr. E. H. segir:
„Hneykslist þeir þá !“ En Jesús segir: ,,Ef nokkur hneyksl-
ar einhvern af þessum smælingjum, sem á mig trúa, betra
væri honum að mylnusteinn væri hengdr um háls honum og