Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1905, Qupperneq 5

Sameiningin - 01.02.1905, Qupperneq 5
um tíma hafa varpað af sér hinum fornu þjóðmenningarflík- um sínum, tileinkaö sér alla veraldlegu menntanina frá vest- rœnu þjóöunum, öll vfsindin þeirra og allan ávöxtinn af hin- um jarSnesku framförum þeirra, og eru nú gegnum hið ógur- lega stríð við rússneska ríkið, að líkindum með sterkri hlut- tekning vor allra og lýðs þessa lands yfir höfuð, að því er virðist á hraðri ferð með að verða eitt af sterkustu og glæsi- legustu stórveldum heimsins. En að lang-mestu leyti er þetta enn heiðin þjóð. Fyrir enga þjóð er það eins mikil og bráð lífsnauðsyn að fá kristindóminn til sín, hreinan og lifanda kristindóm inn í sig. eins og einmitt þessa. Þvíeinsog kunn- ugt er þarf sterkari bein til þess að bera meðlætið en mót- lætið. Og slíkr st)'rkr fæst að eins úr einni átt—fyrir trúna á Jesúm Krist. Hugsum oss, að Kína með sírmm mörgu milíónurn rísi allt í einu menningatlega upp frá dauðum, án þess áðr að hafa kristnast, eins og rejmdin hefir á orðið með Japan, hve hneðilega stór og svartr skuggi það myndi verða, sem þá birtist á söguhimninutn uppi yfir mannkyninu í heild sinni.—Allt þetta bendir til þess, hve mjög ríðr á, að nú só hvervetna í kristninni undinn bráðr bugr aö því að auka og styðja trúboðið t heiðingjalöndunum, og að vér þá ekki lengr með nokkru móti megurn skorast undan hluttöku í þeirri hei- lögu starfsemi. III. í þriðja lagi eigum vér að sinna þessu heilaga stórmáli verklega vorrar eigin velferðar vegna. Það að vér verðum þar með er beinlínis lffsnauðsyn fyrirsjálfa oss eins og nú er málum vorum hinum kirkjulegu komið. Vanalega hefir verið komið með þá mótbáru, þegar farið var fyrst að hreyfa heið- ingjamissíónarmálinu í kristinni kirkju, þar sem það lengi eða ef til vill ætíð áðr hafði legið niðri, að svo margt væri ógjört heima fyrir;—fullt af vantrú, heiðindómi, guöleysi ineðal fólks rétt fyrir utan kirkjudyrnar heima, jafnvel miklar og margar heiðindóms menjar inni í sjálfri kirkjunni. Meðan kristið safnaðarfólk hefði öll þau myrkra-öfl ósigruð í sínu næsta nágrenni, væri ekkert vit í því að vera að seilast eftir heiðingjunum í fjarlægum heimsálfum. Fyrst væri að sópa

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.