Sameiningin - 01.02.1950, Blaðsíða 3
Sameiningin_________________________________
A. monthly, in support of Church and Christianity among'st Icelanders.
Published by
Thb Evangelical Ltjtheran Synod of North America
Authorized as Second Class Mail, Post Ofiice Department, Ottawa.
Editor: REVERAND S. OLAFSSON, Box 701, Selkirk, Manitoba, Canada
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man., Can.
Ljós er lýsa vegi órsins nýja
í einni af sögum danska skáldsins Hans Christian Ander-
sen er sagt frá lítilli umkomulausri stúlku, er seldi eld-
spýtur á strætum úti, í stórborg nokkurri. En þann kalda
gamlársdag er sagan gerist, gat litla stúlkan lítið eða ekkert
selt. Settist hún er aftna tók og hnipraði sig saman í skoti
milli tveggja húsa, í ítrustu tilraun að vinna á móti kuld-
anum, er nú tók að þrengja að henni. Heim þorði hún ekki
að fara, af ótta fyrir viðtökunum — ef hún kæmi heim
auralaus, með eldspýtnabyrgðirnar óseldar.
Til þess að reyna að hlýja sér freistast hún til að kveikja
á nokkrum eldspýtum. En í hvert skipti, sem hún gerði það
birtust henni nýjar sýnir og dýrðlegar. Hún sá heimili,
hlýtt og notalegt, glaða ástvini sem að voru að skemta sér.
Næst birtist henni borð alsett dýrindisréttum. Þar næst
sá hún prýðisfallegt jólatré alsett ljósum og fegursta jóla-
skrúði. Svo kveikti hún á fjórðu eldspýtunni; hún lýsti
vel og í bjarmanum sá hún ömmu sína, — sem þá var dáin,
koma til sín, taka sig í fangið eins og hún hafði gert svo
oft áður og fara með sig eitthvað langt í burt — og nú
þrengdi kuldinn ekki að henni, því amma hennar fór með
hana heim til Guðs. —
Ég vil nota söguna um litlu stúlkuna, er ljósin kveikti
og gera hana að grundvelli ávarpsorða minna.
Það stendur sérstaklega á fyrir okkur öllum við byrjun
þessa blessaða nýja árs. Það er líkt á komið fyrir okkur
og litlu stúlkunni í sögunni hans Andersen. Öll þurfum við
á hlýju og ljósi að halda, á vegum þessa nýbyrjaða árs,