Sameiningin - 01.02.1950, Blaðsíða 10
8
Sameiningin
sig við óáfengan aldina-lög, hvort sem þeim líkaði betur
eða ver. Systkinin smakka aldrei vín. Fylgja ráðum Gandhis
í því sem öðru.
Stjórnvitringurinn Jan Christian Smuts, sem frægastur
er talinn af öllum leiðtogum Búaþjóðar og annara nýlendu-
manna í Suður-Afríku, lagði löndum sínum heilræði þrjú
í ræðu, sem hann flutti nýlega suður þar. Kvaðst hann
byggja þann boðskap sinn á fimmtíu ára reynslu; sagði að
líf lægi við.
Ráðin voru þessi: Fyrst, að gleyma gömlum þjóðflokka-
ríg og vinna saman; annað, að sýna meiri nærgætni blökku-
mönnum landsins; og þriðja, að þverskallast ekki við al-
mennum siðferðiskröfum hins mentaða heims.
Virðast mætti, að Smuts hafi flutt hér sannindamál, sem
allir kannast við. En þó er það sannleikurinn, að nýlendu-
menn í Suður-Afríku hafa farið svo að ráði sínu, að til stór-
vandræða horfir, bæði með flokkadrátt, skammarlega með-
ferð á blökkulýðnum, og ýmiskonar illúð aðra, sem þar
hefir legið í landi um fjölda-mörg ár. G. G.