Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1950, Side 11

Sameiningin - 01.02.1950, Side 11
Sameiningin 9 Frú Caroline Christopherson Faðir hennar var William S. Taylor; hann var bróðir hins alkunna merkismanns John Taylor, sem hafði eftirlit með landnámi fslendinga í Nýja íslandi. Ólst Caroline upp hjá honum og hlaut ágæta mentun; annars verður ekki sá hluti æfi hennar frekar rakinn, vegna þess að nauðsynleg skil- ríki eru ekki fyrir hendi. Eiginmaður Caroline var Sigurður Christopherson frá Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit í Suður-Þingeyjarsýslu. Giftust þau í Nýja íslandi. Fluttust þau hjón þaðan á svæði það, sem nú nefnist Argylebygð. Land þar er frá- bærlega frjósamt. Eggjaði jarðvegurinn menn til þess að afla sér auðæfa, sem þar voru falin. Menn völdust þangað, gæddir miklum sálar og líkamskröftum. Var tekið til óspiltra mála að vinna landið til yrkingar. Menn urðu ekki heldur fyrir vonbrigðum; auðæfin tóku að streyma upp úr jörðinni; engjar reyndust grasgefnar og akurlendi báru ágætan arð. Þessum arði var varið til þess að koma upp reisulegum nýmóðins húsakynnum og margs- konar umbótum. Félagslíf var þá með miklum þrótt. Þau hjón Sigurður og Caroline völdu sér heimili nær miðbygðar, og nefndu það Grund; reistu þau prýðilegt íbúðarhús í yndislegum eikarskógi við smávatn; var þar póstafgreiðla um nokkur ár. Á hálendi við vatnið var ruddur prýðilegur lundur, og stórt samkomuhús var bygt; nutu menn þar margrar gleði- stundar. Það var því iðulega gestkvæmt á Grund af bygðar- mönnum og fleirum lengra að. Sigurður gegndi ýmsum á- byrgðarmiklum störfum; hann fór þrívegis til íslands í inn- flutningserindum fyrir stjórnina, og var honum falið að velja bygðarlög fyrir landa hér. Öll þessi starfsemi útheimti iðulega fjarveru Sigurðar frá heimilinu; féll þá í hlut Caro- line að gæta bús og barna og að sjá um að starfsemi heim- ilisins og umboðsstörf fengju hagkvæma afgreiðslu. Caroline eða Carie eins og hún var vanalega nefnd varð prýðilega talandi á íslenzku og las hana einnig mjög vel. mikil nautn að vera á gangi innan um hinar öldnu eikur,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.