Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1950, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.02.1950, Qupperneq 12
10 Sameiningin Setti hún sig svo vel inn í hugsunarhátt Islendinga, að hún mátti teljast alíslenzk; var ekki annað fundið en svo væri; leysti hún hyggilega vandræði margra á hinum erf- iðu frumbýlingsárum. Margar stoðir runnu undir náknýtta samhygð Carie við íslendinga; eiginmaður hennar var ís- lenzkur; áhugamál íslendinga voru einkamál hennar; faðir hennar giftist íslenzkri konu að seinni giftingu; hin prýði- lega, ógleymanlega kona systir hennar Súsanna, giftist Hall- dóri Briem; fluttust þau til íslands. Það má með sönnu segja. að Carie yrði íslenzk að fullu. Carie veitti ágæta forstöðu fyrir heimilinu í fjarveru Sigurðar; voru þau hjón vel samhent í öllum fyrirtækjum og störfum. Carie var hæglát hversdagslega; þegar glatt var á hjalla á heimilinu, þegar margir unglingar voru samankomnir, var hún umburðarlynd en eftirlitssöm með hógværum og blíðum fyrirskipunum, sem krafðist hlýðni. Hún jók mentun sína allmjög með lestri góðra bóka. sem var allmikið af; voru bækur þessar ensk ljóðmæli og fræðibækur; kvnti Carie sér þessar bækur til mikilla af- nota. Minnist ég með mikilli ánægju þriggja bóka, sem eru mér í fersku minni: Eitt var bók með æfisögubrotum mikilmenna, sem höfðu brotist áfram til metorða og virð- ingar; þá var ferðasaga Stanleys um Afríku, þegar hann var að leita að Davíð Livingstone, var það ágætisbók mjög fræðandi; þá var til Nýja Testamentið á grísku úr eign John Taylors. Fékk ég mikla löngun til að kynnast því. Carie hafði mikla yfirburði yfir það, sem alment gerist á bóklega vísu. Menn litu upp til hennar með velvild og virð- ingu; létu menn börn sín heita í höfuðið á henni. Yel kunni Carie að meta kosti og manngildi annara, þótt þeir feldust undir hrjúfum feldi; hún unni öllu hreinu og háleitu, vildi styðja alt sem gott var; hinn blíði og ró- legi hugsunarháttur hennar gerði henni létt fyrir að setja sig inn í tilfinningar annara með góðsamlegri hluttekningu. Þegar ég nú horfi yfir liðna tíð, virðist mér sem að Grund- arheimilið muni hafa búið yfir mörgum kostum, sem stóðu bygðinni til heilla. En hvernig sem þessu er farið, veit ég þó það eitt, að Grund verður ávalt þeim sem til þekkja heillaríkt tilefni ótal hugnæmra endurminninga. Það er

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.