Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1950, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.02.1950, Qupperneq 17
Sameiningin 15 Hugvekja Jesús sagði: „En hvað virðist yður? Einn maður átti tvo sonu; hann gekk til annars og sagði: Sonur, far þú í dag og vinn verk í víngarði mínum. En hann kvaðst hvergi mundu fara; en eftir á iðraðist hann þess og fór til verks- ins. Þá gekk faðirinn til hins, og sagði eins við hann; hann játti því, en fór þó hvergi. Hvor af þessum tveimur gjörði nú vilja föðursins? Þeir svöruðu: Sá fyrri. Þá mælti Jesús: Sannlega segi ég yður, að tollheimtumenn og pútur munu fyrr koma í Guðs ríki en þér“. Matt. 21, 28.—31. Jesús hafði hreinsað helgidóminn og rekið út mangarana. Eftir það talar hann til lýðsins. Það er nú langt liðið á ævi hans hér á jörðunni. Því nær sem líður dauða hans, verða orð hans áhrifameiri. Hörð er hans ræða stundum, en framar öllu leggur hann samt stund á að vekja menn- ina og leiðbeina þeim. Aldrei var Jesús jafnbrennandi í andanum eins og þegar hann kallaði mennina til starfa í víngarði sínum. í þessum texta eins og svo víða annars staðar svarar Jesús hinni miklu spurningu, leitast við að gera mönnum ljóst, hvað þurfi til þess að geta orðið Guðs barn, borgari í Guðs ríki. Svarið er í tveim liðum. 1. Sá einn er Guðs barn, er byggir á þeim grundvelli, sem er Jesús Kristur. „Enginn getur annan grundvöll lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Kristur“. — Jesús talar til öldunga lýðs- ins, þeirra sem hefðu átt að þekkja veg hjálpræðisins, því að þeir þekktu eða áttu að þekkja hið heilaga orð. Þar var og er leiðin mörkuð, en það nægir ekki að þekkja veginn. Við verðum að fara hann, ef við eigum að ná markinu. Lærðu mennirnir í Gyðingalandi á hérvistar- dögum Jesú voru blindir í andlegum efnum; þeir kusu að ganga annan veg en þann, sem til lífsins leiðir. Þeir fóru veg eigingirninnar. Sá breiði vegurinn var þægilegur. Til þess að ganga hann þurftu menn ekki að afklæðast neinu eða íklæðast. — Það var fyrirhafnarlítið að fara þá leiðina, en það var ekki lífsins leið. Þú finnur aldrei þá leið, ef þú fer fram hjá Jesú. Það er trúin á hann, sem gefur þér réttinn mikla, Guðs

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.