Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1950, Side 7

Sameiningin - 01.09.1950, Side 7
Sameiningin 117 Þetta tókst vonum betur og var afráðið að hætta við Is- lendingadaginn og Lýðveldishátíðina þetta ár en halda sjötíu og fimm ára landnámshátíð á Gimli 6. og 7. ágúst 1950. Þegar hér var komið voru kosnir fjórir menn frá Winnipeg, tveir frá Gimli, sex frá Norður Nýja-íslandi og einn frá Selkirk og skyldu þeir standa fyrir undirbún- ingi hátíðarinnar með hjálp íslendingadags- og Lýðveldis- hátíðarnefndanna. Forseti íslendingadagsnefndarinnar, séra Valdimar J. Eylands, var kosinn formaður hátíðarnefndar- innar og tók hún til starfa upp úr síðustu áramótum. Allir fundir voru haldnir á Gimli og var samvinnan hin bezta og' spáir góðu fyrir framtíðina. Hátíðahöldin hófust, með guðsþjónustu, kl. 2 e. h., sunnudaginn, 6. ágúst, í skautaskála Gimli-bæjar. Var þar samankominn mikill mannfjöldi. Þessari mikilfenglegu at- höfn stjórnaði séra Valdimar J. Eylands. Las hann tvo Ritningarkafla, Jes. 40:1—9 og Matt. 5:1—9, og flutti bæn. Ræður fluttu þeir séra Rúnólfur Marteinsson, D.D., á ís- lenzku, og séra Philip M. Pétursson, á ensku. Fjórir sálmar voru sungnir: „í fornöld á jörðu“, „Faðir andanna“, „God of our Fathers11, „Our God, our help in Ages Past“. Við þetta tækifæri söng blandaður kór frá Norður-Nýja-íslandi, undir stjórn Jóhannesar Pálssonar frá Geysi. Auk sálm- anna söng þessi flokkur hátíðarsöng, „O send Thy Light“. Um kl. tvö eftir hádegi næsta dag hófust hátíðahöldin á ný með skrúðgöngu til skemtigarðsins frá járnbrautar- stöðinni á Gimli. Hljómsveitin „La Verendrye“ frá St. Boni- face gekk fyrir en þar næst kom Fjallkona dagsins og hirð- meyjar hennar í fagurlega skreyttum bíl, en í kjölfar hans skriðu ótal farartæki sömu tegundar. Þegar í garðinn kom var Fjallkonan leidd til hásætis og setti þá séra V. J. Ey- lands, forseti dagsins, hátíðina og fylgdi þá skemtiskrá, sem stóð yfir á fjórða klukkutíma. Að lokinni skemtiskrá var gengið að minnisvarða landnemanna, sem stendur skamt frá skemtigarðinum, og lagði Fjallkonan blóm.sveig á varð- ann, svo sem siður er til á íslendingadögum. Nú varð nokk- urt hlé, en í rökkrinu kom fólk aftur saman og skemti sér við að syngja ýms uppáhalds lög ensk og íslenzk, undir stjórn Páls Bardal þingmanns. Klukkan níu byrjaði dans- inn og þegar dimt var orðið voru sýndar íslenzkar kvik- myndir undir beru lofti og mæltist þetta nýbrigði vel fyrir,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.