Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1950, Page 4

Sameiningin - 01.12.1950, Page 4
162 Sameiningin Þótt háir turnar hrynji, heimurinn sýnir sig. Þitt hjarta gefðu Guði; hann getur varðveitt þig. Tak barnið inn í brjóst þitt; það býr þér friðarskjól, án þess getur þú eigi öðlast Guðs himnesk jól. Það ljós, sem aldrei eyðist augu þín megi sjá; sú jólagjöf þér gefist Guðs helgidómi frá. Þá sigrar þú um síðir og syngur lofsönginn, sem hjarðsveinarnir heyrðu, í hjörtun meðtekin. ____________-t-_________ Ljósið alheimsins Lúkas 2: 1.—14. Eftir séra SKÚLA J. SIGURGEIRSSON „Dýrð sé Guði í upphæðum, og á jörðu friður meðal manna, sem velþóknun er á“. „Og í þeirri bygð voru fjárhirðar, er voru úti og héldu náttvörð yfir hjörð sinni“. Auðvitað voru fjárhirðar í öðrum bygðum, en sú bygð, sem Lúkas á við í frásögninni um fæðingu Frelsarans, er héraðið umhverfis forn-bæinn Betlehem, eða þær stöðv- ar þar sem Davíð konungur hafði á liðnum öldum haldið náttvörð yfir hjörð sinni. Þetta var söguríkt umhverfi. Það var á þessum stöðvum undir alstirndum himni í kyrð næt- urinnar að Davíð orti sinn ódauðlega sálm: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta“. Traust Davíðs á Drotni hafði þroskast í sálu hans meðal þessara sömu hæða skamt frá Betlehem og þar sem fjárhirðar öldum síðar sáu á fæðingarnótt Jesú Krists þá undraverðustu og dýrð- legustu sýn, sem komið hefir fyrir augsjón manna. Þeir sem gættu fjár voru í nánu sambandi við náttúruna í hennar frumeðli, og það er oft að finna, meðal þeirra sem þannig

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.