Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1950, Page 14

Sameiningin - 01.12.1950, Page 14
172 Sameiningin hans. Fagur og áhrifamikill í látleysi sínu er sálmurinn „Vér trúum — þó að logi lágt vort litla trúarskar“. Hreim- mikill og hrífandi er einnig þakkarsálmurinn í tilefni af stofnun íslenzka lýðveldisins. (Undir laginu: „Vakna, Síons verðir kalla“), og er þetta annað versið: Þúsundradda þakkarhljómum frá þjóðarinnar helgidómum skal hylla þá, sem börðust bezt. Saga’ er minnug sinna manna. Á silfurspjöldum minninganna hvert nafn er römmum rúnum fest. Frá fjalli’ að fjarðarál nú flutt skal þakkarmál. Dýrð sé drottni! Hann gaf oss menn, og gefur enn, er hefja vörn og sókn í senn. Margt er annarra prýðisgóðra og trúarheitra sálma 1 safninu, frumortra og þýddra. En mér sýnist fara vel á því að ljúka þessari stuttorðu umsögn, sem rituð er með jólin í huga, á eftirfarandi jólasálmi, sem lýsir fagurlega lífs- skoðun höfundarins, heitri trú hans og hugsjónaást, og er einnig sérstaklega tímabær, eins og nú er umhorfs í heim- inum (Lag: „Þann signaða dag“): Kom blessuð, þú nótt, sem boðar frið, Kom blessuð til íslandsstranda. Kom blessað, þú heilagt himnalið, með harmbót til allra landa. Kom, drottinn, og set þú sátt og grið og sendu oss helgan anda. Það dimmir svo oft í heimi hér; því hroki og sundrung veldur. Og útskúfað friðarengli er, en ofstopinn velli heldur. — En jólanna helgi um hjörtun fer sem hreinsandi drottins eldur.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.