Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1950, Side 16

Sameiningin - 01.12.1950, Side 16
174 Sameiningin við verkið, en heimtar hærra kaup; en alþýðan eyðir pen- ingum í alls konar munað og beinir svo framleiðslunni burt frá nauðsynjum. Liggur því viðnámið á sviði trúar og siðgæðis; kirkjan þarf að taka djarft á þessu meini — og það gjöra klerkar óspart, þar í Ástralíu. ----------☆----------- Vofa Hitlers gengur ljósum logum suður í Alabama- ríki, segir leiðandi maður í hópi Baptista suður þar. Vottur um reimleika þann, segir prestur, er erfðaskrá miljónamær- ings í Birmingham, sem Woodward hét. Skjalið ákveður, að þrem miljónum sé varið til að stofna skóla eða uppeldis- hæli fyrir hvíta drengi, — en svertingjasveinar fá þar ekki vist, af því að dagfar þeirra, hugsunarháttur eða innræti getur að hyggju gefandans haft spillandi áhrif á hvíta hópinn. Gyðingum skal líka neitað um vist á þessari stofn- un. Ber þetta ljósan vott um það, að andi Hitlers sé enn á kreiki suður í Alabama, segir Baptistinn. ----------■☆■--------- Gamall glæpur hefir nú nýtt nafn í alþjóðalögum. Hann heitir nú á ensku máli Genocide, sem þýða mætti „kynsmorð“ eða „þjóðardráp“. Er þar átt við eyðingu þjóð- ar, ættkvíslar eða trúarflokks, annað hvort í heild eða að parti. Yfir 20 þjóðir hafa nú samþykt nýja löggjöf gegn glæp þessum og lagt skjalið fyrir þing Bandaþjóðanna til staðfestingar. Eftir lögum þessum má kæra þjóðir eða einstaklinga um glæpinn, og sækja það mál að lögum annað hvort fyrir dómstólum einstakra þjóða, eða í alþjóðadómi. Hryðjuverk Hitlers-manna, einkum gasklefarnir al- ræmdu, þar sem þeir félagar drápu þúsundir Gyðinga, eru vitaskuld undirrótin að þessari löggjöf. En glæpurinn sjálf- ur er engin nýjung, ekkert einsdæmi. í þessu sambandi rekur mann ósjálfrátt minni til hryðju- verksins á Frakklandi, þegar páfamenn drápu mótmæl- endur í þúsundatali — alt að fimtíu þúsundum, segja sum- ar heimildir — nóttina fyrir Bartólómensarmessu, 24. ágúst, 1575, og næstu daga; og páfinn í Róm lét syngja messur í öllum kirkjum þeirrar borgar heilögum guði til lofs og dýrðar fyrir það ódáðaverk. — Ekki var genocide Hitlers mikið verra.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.