Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1950, Qupperneq 18

Sameiningin - 01.12.1950, Qupperneq 18
176 Sameiningin heiður að vera kallaður sem prestur til átthaga sinna, Nýja- íslands, og var hann nokkur ár þjónandi prestur í Gimli prestakalli. Síðar varð hann eftirmaður föður síns í Arborg. Sýnir þetta bæði hið mikla traust, sem jafnaldrar hans og leikbræður, sem þá voru teknir við safnaðarforráðum í prestakallinu, báru til hans, og ennfremur vinsældir fjöl- skyldu séra Jóhanns. Söfnuðina mun heldur ekki hafa iðrað þess að hafa valið séra Bjarna fyrir prest. Vinsældir þeirra hjóna voru miklar og fóru sí-vaxandi. Skömmu áður en þau lögðu af stað frá Arborg, hélt prestakallið þeim afar fjölmennt sam- sæti, og sæmdi þau rausnarlegum gjöfum. Séra Bjarni gat sér hinn bezta orðstýr sem prestur og embættismaður í kirkjufélagi voru, enda er hann manna samvizkusamastur, og mjög nákvæmur í allri embættis- færslu sinni. 1 ræðum sínum er hann rökfastur og ákveðinn málafylgjumaður sem faðir hans, og laus við allan undan- slátt. Einkum er hann óvenjulega fær og reglusamur skrif- stofumaður, enda sérmenntaður í þeirri grein. Kom þetta einkar vel í ljós í afgreiðslu hans allri sem skrifari kirkju- félagsins, og heimatrúbaðsnefndar þess, en bæði þau em- bætti hafði hann á hendi í nokkur ár. Þá hefir og kona séra Bjarna, Alma Olson, ættuð frá Gimli, mjög stuðlað að vinsældum manns síns, og farsæld hans í prestsstarfinu. En hún er að allra dómi hin ágætasta kona, ljúflynd og háttprúð. Þau hjón eiga tvo sonu, Bryan og Warren, báða á unga aldri. Það er mikil eftirsjá að séra Bjarna, og fjölskyldu hans, úr hinum fámenna hópi kennimanna vorra. En hvorki hon- um né söfnuðunum í Nýja-íslandi var framtíðardvöl þeirra þar í sjálfsvald sett. Báðir aðilar myndu hafa óskað lengri samvinnu en raun varð á. En heilsu prestsins var þann veg farið að hann varð, að læknisráði, að leita í þurrara og hlýrra loftslag en kostur er á í Manitoba. Hinir mörgu vinir þeirra hjóna, norður hér, hafa kvatt þau með söknuði og eftirsjá, en óska þess að hið nýja um- hverfi megi hafa heillavænleg áhrif á heilsu séra Bjarna, og að vinnudagur hans í víngarði Drottins megi verða langur og gifturíkur.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.