Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1940, Side 5

Sameiningin - 01.04.1940, Side 5
51 árangur að loknu erí'iði; hressingu, hvíld og vinafagnað.— Gröfin var áður eins og myrkar dyr; bústaðurinn eins og eyðibýli; það var hljótt og tómlegt á þeim stöðvum. Hversu mikið sem skygði að í mannlífinu, þá var þó gröfin dimmari. Gestrisin var hún ekki, þótt hún biði allra manna með opnu myrkrágini. Hún fældi menn frá sér. Enginn fór öruggur um þær stöðvar. En svo kom meistarinn og gekk ótrauður í gegnum þær geigvænlegu dyr. “í húsi föður míns eru mörg híbýli,” sagði hann við vini sína, — “og þegar eg hefi farið burt og hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun taka yður lil mín.” Hann efndi þau orð; fór um dimmu göngin og kom þaðan aftur til sinna. Og síðan hefir aldrei verið al-dimt á stöðvum þeim. Allir, sem trúa meistaranum, geta séð Jjósið framundan, þegar dimma tekur. Og því betur seni þú hefir fylgt og þjónað honum hér á jörð, því iunilegri sem vinátt- an hefir verið á milli þín og hans, því bjartara verður það Ijós fyrir augum þínum í kvöldhúminu. Það verður þér eins og jarteikn um sigur og t'rið að loknu stríði; það bendir þér heim til fundar við Drottin; heim í fögnuðinn og dýrð- ina, sem hjá honum býr að eilífu. Gröfin er ekki heljar hlið lengur; hún er inngangur til ljóss og lífs, og sannkall- aðar “fögrudyr.”— “Lofsamleg er sú lukkustund þá lít eg þig, herann þýði í þinni prýði; gef mér loksins þann fagnaðarfund, þó fyrst um sinn hér bíði.” —G. G. 25. sálmur Davíðs (7. vers) Mundu ei til æsku minnar Yfirsjóna — Drottinn kær, Grunnlaust djúpið gæzku þinnar Gef um eilífð hylji þær. Lít til mín af mildi þinni, Miskunn eg svo hreldur finni, Sára hjartans sorg og pín Sefi og mýki náðin þin.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.