Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 6

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 6
36 ur uppi á raeðal ókristinna þjóða — “erlenda trúboðið,” sem svo er kallað, eða kristniboðið. Þar hefir hún átt marga sína beztu menn. Og hvergi hefir erindi Krists verið rekið af meiri fórnfýsi, meiri hetjuskap — eða með betra árangri, þegar á alt er iitið. Framtíðarvon kristninnar er að miklu leyti undir því komin, hvernig trúboðinu reiðir af, því að hún lifir ekki til langframa nema hún breiðist út. Hún á það sammerkt með öllu sem lifir, að þegar hún hættir að vaxa, þá byrjar hún að deyja. Og hvað líður þá j)essu fjöreggi kristninnar, trúboðinu í útlöndum? Mikill hluti ])ess er í nauðum statt, ef ekki dauðahættu. Kirkjurnar í ófriðarlöndum Norðurálfu. það er að segja á Þýzkalandi, Hollandi, Fralcklandi; í Noregi, Danmörku og Belgíu, hafa orðið nauðugar viljugar að sleppa hendi af sínum kristniboðs útvegum. Finska trúboðið má teljast hér með, jafnvel þótt Finnar séu nú lausir við ófriðinn að sinni. Trúhoðsfvrirtækin, sem Mótmælenda- kirkjan í löndum þessum hefir staðið straum af. eiga nú ekki beinar samgöngur við móðurkirlcjurnar og í'á þaðan engan styrk. Standa því uppi berskjölduð og munaðarlaus; orphnned missions, eru þær vinnustöðvar kallaðar á ensku máli. Katólska kirkjan er auðvitað betur stödd í þessu efni. Þótt hún bíði skakkaföll einhversstaðar, þá er bol- magnið nógu mik’ið til að sjá starfinu borgið eins fyrir því. Munaðarlausu missiónirnar eru nú 168 talsins; 56 eru af lúterskum stofni, en 112 heyra til öðrum mótmælenda- kirkjum. Þrjú þúsund og fimm hundruð rnanns voru starf- andi á þessum stöðvum í ófriðarbyrjun árið 1939. Fjár- styrlcurinn sem þær fengu hei.man að, mun hafa numið hálfri fimtu miljón dölurn árlega. tmsar kirkjurnar fengu sent nokkurn aukastyrk til trúboðsins rétt áður en sam- göngur tókust af, og geta því sum svæðin að einhverju leyti fleytt sér á þeim fjárafla fram að lokum þessa árs. En aðrar missiónir höfðu ekki því láni að fagna. Svo var um hol- lenzka trúboðið á Indlandseyjum. Það stóð uppi gjörsam- lega félaust og þurfti hjálp úr öðrum áttum þegar í stað. Að ÖIlu saman lögðu, með því að hætta við nokkrar deildir í verkinu og færa kaupgjaldið niður í sultarlaun eða því sem næst, munu þessar 168 missiónir geta bjargast af til ófriðarloka með svo sem tveggja miljóna styrk á ári. Ef til vill getur kirkjan á Bretlandi, í Suður-Afríku og Ástraliu,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.