Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 8
38 þörfnuðust fastan prest. Á meðal þeirra er söfnuðurinn í Mount Carroll, sem eg nú hefi tekið köllun frá Að eg hefi þannig tekið starfi utan íslenzka kirkjufélagsins. stafar ein- vörðungu af því að sem stendur er ekkert prestakall til innan þess vébanda er þarfnast þjónustu, sem eg á þessu stigi ævinnar treysti mér til að rækja. Eg geri ráð fyrir að ein- hversstaðar kynni þjónusta mín að vera þegin. Eg er að vísu við góða heilsu og finst að eg muni geta átt framundan margra ára starf, en ekki í erfiðu prestakalli þar sem mörgum kirkjum væri að þjóna. Eg hefði átt kost á að fá köllun frá ýmsum söfnuðum hér syðra ef eg hefði gefið kost á mér, en er eg kyntist í Mount Carroll, og fólkið þar hafði hug á að fá mig, fanst mér að þar mundi eg geta fallið inn í og notið mín. í prestakallinu er aðeins ein kirkja. Byrjar föst þjónusta þar 1. marz, þó eg hafi reyndar þjónað þar að mestu leyti síðan um nýár. Um óákveðinn tíma, að minsta kosti mest af þessu ári, mun eg halda áfram jafnhliða starf- inu á skrifstofunni hér í Chicago. Mér fanst auðveldara að þjóna á einum stað en að flytja guðsþjónustur víðsvegar eins og árið sem leið. Ekki er eg í neinum vafa um að eg mundi oft sakna samfélagsins í íslenzka kirkjufélaginu. Eg hefi verið því samgróinn svo lengi. Eg mun fylgjast með málurn þess og starfi af áhuga og gleðjast yfir allri velferð þess. En eg er þannig gerður að eg aldrei set fyrir mig til lengdar það sem verður að vera og ekki verður að gert. Eg tek því sem ráð- stöfun guðlegrar forsjónar að eg nú taki starfi þar sem eg hefi von um að geta notið mín án erfiðra ferðalaga. Þá þrá ber eg fyrir brjósti að eg mætti enn á einhvern hátt vera málefnum kirkjufélagsins að liði. En árin og ástæður leiða í ljós hvort nokkuð getur af því orðið. Fúsleik til þess mun eg ætíð eiga. Á það dreg eg ekki dul að prests starfið eins og eg hefi þekt það hefir sín vandkvæði og erfiðleika, sem þó eigi vega upp á móti þeirri fullnægju er það veitir. Á meðal fólks vors hefi eg notið svo mikillar góðvildar og trygðar að það er sem hverfandi er á móti hefir blásið. Bæði sem þjónandi prestur og sem forseti kirkjufélagsins í tuttugu ár, hefi eg orðið fyrir svo mikilli gæfu að í huga mínum er ekkert nema þakklæti við forsjónina fyrir að hafa leyft mér að eiga þennan hlut að máli í lífi okkar Vestur- íslendinga. Frá umferðastarfi mínu á sviði kirkjufélagsins

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.