Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 9
39 á eg einnig dýrmætar endurminningar. Mitt eigið mat er að það hafi ekki síður haft þýðingu en fastastarf mitt. Eg minnist hinna mörgu víðsvegar í bygðum er greitt hafa fyrir mér og metið það er eg vildi gera, langt fram yfir mína verðleika. Eg hefi fundið til þess að eg hefði notið þess málefnis er eg vildi hefja og þeirra hugsjóna er eg vildi þjóna. Eg hefi enga tilhneigingu til þess að ala á þeim skilmingum er eg hefi orðið fyrir eða þeim smá aðköstum er á mér hafa lent. Sumt af því verður að skrifa á reikning eigin vankanta minna, en um leið að minnast þess að tæpast verður starfað af nokkrum manndómi nema verða fyrir slíkum vandkvæðum. Þegar þau eru liðin hjá er bezt að þau séu gleymd, nema að því leyti er þau geta verið til lærdóms. Eg ber engin örkumsl úr þeim viðureignum. Þegar eg nú hverf frá kirkjufélaginu er mér það hugfró að eg verð áfram starfandi í þeirri aðalheild, U.L.C.A., er kirkjufélagið nú tilheyrir. Það er vel kunnugt að eg hafði mikinn hug á því að kirkjufélagið gengi inn í Sameinuðu lútersku kirkjuna sem fullgild heild. Eg lagði fram krafta mína eftir því sem mér var unt til að af því mætti verða. Skoðun mín er óbreytt í því efni. Kirkjuleg einangrun er dauði. Engin kirkjudeild er fullkomin, en það réttlætir ekki sérgæðingshátt. Það sem varðar mestu er að kirkjufélagið hefir tekið ákveðið spor út úr starfslegri og kristilegri ein- angrun á þessu meginlandi og stefnt inn á svið sameigin- legs áhuga og framtakssemi með þeim er oss standa næst trúarlega, um leið og það opnar leið til fyllri þátttöku í hérlendu lífi. Eg ber fylsta traust til þeirra er nú standa fyrir málum að halda þeim í heppilegu horfi í þessu tilliti og öðru. Samkomulag Vestur-íslendinga hefir ekki ætíð verið sem bezt. Fyrir nokkrum árum flutti eg erindi allvíða í bygðum vorum er eg nefndi “Samkomulag Vestur-íslendinga”. Þau ummæli voru um það höfð að merkilegt væri að tala um það er ekki væri til. Ekki ætla eg mér þá dul að áhrif mín hafi orkað miklu, en engu að síður er það vel farið að á síðari árum hefir sú stefna er eg hélt fram fengið aukinn byr. Að skoðanamunur þurfi að leiða til persónulegrar óvildar er nú mjög véfengd kenning bæði í orði og verki. Kirkjunnar menn hafa því miður ekki ætíð borið hreinan skjöld í þessu efni. Þeim ætti þó að sjálfsögðu að standa nærri að efla velvild og bróðurhug sem skilyrði fyrir öllum kristi-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.