Sameiningin - 01.03.1944, Blaðsíða 14
44
flutt við guðsþjónustu að Mountain 5. marz, á eftir prédikun
Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, af séra K. K. Ólafssyni.
Eg þakka háttvirtum forseta kirkjufélagsins og heima-
presti hér, séra Haraldi Sigmar og sóknarnefndum Víkur og
Vídalíns safnaða, fyrir hið virðulega boð þeirra, til mín að
vera hér viðstaddur í dag og taka þátt í hátíð þeirri, sem hér
er nú vegna heimsóknar biskupsins yfir íslandi, Sigurgeirs
Sigurðssonar, er hér hefir flutt fagnaðarerindi Krists á þess-
ari helgu stund með þeirri andagift, sem sæmir yfirhirði
kirkjuhnar. Einnig þakka eg þér séra Haraldur fyrir þína
bróðurlegu framkomu í því að láta mér nú í té það hlutverk
er þér sjálfum tilheyrir með réttu.
Það er mér óskiftur fögnuður að fá að ávarpa þig herra
biskup, við þetta tækifæri, og eiga þátt í því að bjóða þig
velkominn til þessarar höfuðbygðar íslendinga í Bandaríkj-
unum. Eins er mér það mjög ljúft að taka undir það að
bjóða þig velkominn í nafni Kirkjufélagsins lúterska Eg
veit að í þessu felst öll sú alúð og vinarhugur er komið
getur fram milli bræðra, að viðbættu því hvílíkur heiður
það er að njóta þinnar virðulegu heimsóknar. Kristið fólk
vort hér, fagnar þér með tilfinningu fyrir þeirri þakklætis-
skuld er vér erum í við íslenzka kristni. Feður vorir komu
fátækir frá ættjörðinni, en þeir áttu í fórum sínum dýr-
mætan andlegan arf. Þeir voru trúmenn. Það hefir verið
rakið og rætt hvað hafi leitt þá hingað. Margir þeirra trúðu
því að þeir væru leiddir af guðlegri forsjón. Og sagan síðan
staðfestir að því fylgdi gæfa fyrir hlutaðeigendur og heima-
þjóðina. Eg hefi notið þess að fá að lesa nokkuð af bréfum
frá frumbýlingsárunum. Það lýsir þar merkilega af öruggri
kristinni trú. Þeir vissu á hvern þeir höfðu sett traust sitt.
Enda var tæpast búið að refta yfir fyrstu heimilin, þegar
samtök fóru að vakna um að koma á kristnum söfnuðum og
starfi. Ekki mun kirkja íslands hafa verið álitin sérstaklega
vel vakandi á þeirri tíð, en þessir voru ávextirnir þegar á
reyndi í lífi barna hennar. Að minnast þessa á þessum
stöðvum er sérstaklega viðeigandi, því í þessari kirkju var
stofnað kirkjufélag vort, er nú hefir starfið í 59 ár, og hér í