Sameiningin - 01.03.1944, Síða 13
43
annars, á annað þúsund barna, sem hann hefir fermt hér í
prestakallinu. Það er frá samklið þessara strengja, sem hér
hafa þroskast kærleiksríkar hugsanir.
Það hefir verið kærleikur frjálsborins manns; engin
tunga hefir verið bundin, enginn fótur fjötraður. Vinnan er
ekki lögð í það, að berjast við hið illa, heldur að þroska hið
góða, vitandi það, að þar sem ljósið er kveikt, hlýtur myrkrið
að víkja.”
Sigurgeir biskup er hinn áttundi í röðinni þeirra biskupa
er haft hafa alt landið að umdæmi. Geir biskup Vídalín,
vígður 1802, var hinn fyrsti þeirra. Sigurgeir biskup er sá
eini þeirra er var prestur á fjarlægum og afskektum stað
frá Reykjavík, áður en til biskups væri kjörinn. Geir biskup
Vídalín var prestur í dómkirkjusöfnuðinum í Reykjavík.
Steingrímur Jónsson var skólastjóri'á Bessastöðum, síðar um
hríð prestur í Odda. Helgi Guðmundsson Thordarson, var
dómkirkjuprestur. Pétur Pétursson var um nærri tvo tugi
ára íorstöðumaður prestaskólans. Hallgrímur Sveinsson var
dómkirkjuprestur. Þórhallur Bjarnason var forstöðumaður
prestaskólans, en dr. Jón Helgason, forstöðumaður presta-
skólans, en síðar við guðfræðisdeild háskólans, eftir stofn-
un hans. Það er því dálítið sérstakt atriði, sögulega skoðað,
er séra Sigurgeir var til biskups kjörinn, sýndi það hin
miklu ítök er hann átti hjá prestum landsins, því mætir
menn úr prestastéttinni, honum eldri í embætti, lærðari og
alþjóð kunnari, voru einnig í vali.
Kirkjufélag vort þakkar biskupinum komu hans af
einlægum hug, þakkar stjórn íslands fyrir að velja hann
sem sendiboða góðviljans til íslendinga í Vesturheimi. Bet-
ur var ekki unt að velja. Vér vonum og trúum því að áhrifin
af bróðurhug hans og kærleika megi lengi með oss lifa;
biðjum honum fararheillar og gleðilegrar heimkomu tii ást-
vina — og til starfs í þjónustu kirkjunnar, er ól oss sér við
brjóst.
S. Ólafsson.
Minniát Betel í erfðaskrám yðar