Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1944, Síða 15

Sameiningin - 01.03.1944, Síða 15
45 grafreitnum hvílir faðir þessarar bygðar og stofnandi þessa safnaðar, séra Páll Þorláksson. Kirkja vor hefir borið merki ófullkomleikans — á þau er auðvelt að benda — en án hennar er hætt við að guðræknis tilbeiðslu og þjónustu þátturinn í anda Krists væri að miklu leyti horfinn úr sögu og lífi Vestur-íslendinga. Yrði þá snauðara um en margir ætla. Þar er ávöxtur af sálmum Hallgríms Péturssonar og kyngikrafti orða Jóns Vídalíns, af eldmóði séra Jóns Stein- grímssonar, af trúverðugu starfi Kennimanna kirkjunnar, af íslenzkri heimiliskenslu og bænum íslenzkra mæðra. Vér fögnum þér sem biskupi íslands, vegna þess dýrmæta arfs er vér eigum frá íslenzkri kristni. En vér fögnum þér einnig vegna þess lifandi sambands er verið hefir milli kirkju íslands og vor frá fyrstu landnáms- tíð vorri. Þeir eru að vísu fáir kennimennirnir er til vor hafa komið frá íslandi og hér hafa staðnæmst til lengdar. Þó ekki séu neitt rýrð áhrif þeirra ýmsra er hér hafa átt skamma dvöl, þá má að jafnaði búast við að drjúgust verði áhrif þeirra er brenna brýrnar að baki sér og hverfa ekki heim aftur. En mikil er skuld vor fyrir annan eins leið- toga og séra Jón Bjarnason kirkjuföður vorn og fyrir eins glæsilegan starfsmann og séra Friðrik Hallgrímsson er varði meir en tuttugu af beztu árum ævi sinnar í þjónustu kirkjufélags vors. En þegar rætt er um liíandi samband milli vor og kirkju íslands, má telja fleira en þá kennimenn er á milli hafa farið til langrar eða skammrar dvalar, skyndi- ferðir kennimanna og leikmanna að heiman hingað og héðan heim, hafa haft mikil áhrif og glætt sambandið. Er mér sérstaklega minnisstæð koma séra Kjartans Helgasonar. Að mínu áliti voru áhrif hans dýpri menningarlega og kirkjulega en annara er komið hafa að heiman til stuttrar dvalar, þó margir hafi verið ágætir. Það var einnig stór viðburður er Jón biskup Helgason heimsótti Vestur-ls- lendinga, þó það mætti til ógæfu teljast að hann kom á vegum nokkurs hluta þeirra en ekki allra. Áhrif annars eins kirkjuhöfðingja og fræðimanns hlutu þó undir öllum kring- umstæðum að vera mikil. En framyfir þessar milliferðir, hefir andlegt samband milli vor og kirkju íslands hvílt á enn víðtækara grundvelli. Hvorir um sig hafa fylgst með hinum á ýmsan hátt. Leiðtogar ýmsir og aðrir hafa skrifast á og rætt sín áhugamál. Eg minnist bréfa frá Þórhalli biskup Bjarnasyni og öðrum leiðtogum íslenzkrar kirkju til séra

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.