Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 4
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Í frétt blaðins í gær um heimgreiðslur
til barnafjölskyldna í Reykjavík mis-
ritaðist kostnaður borgarinnar vegna
2ja ára leikskólabarna. Hann er
160.000 krónur á mánuði en ekki ári.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
7°
5°
3°
9°
7°
2°
2°
18°
8°
13°
8°
24°
-1°
9°
15°
-1°
Á MORGUN
8-15 m/s.
FÖSTUDAGUR
5-10 m/s.
7
-5
4
4
4
0
0
3
2
-1
3
9
7
7
7
6
8
12
9
7
9
6
5
5
6
3
3
0
-1-2
3
FÍNT UM TÍMA
Ágætis veður víðast
á landinu í dag en
gengur í hvassa
sunnanátt um
vestan vert landið
með slyddu eða
rigningu seint í
kvöld. Á morgun
verður stíf suð-
vestanátt með
úrkomu sunnan-
og vestanlands en
úrkomlítið norð-
austan til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Fiskverð hækkað
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna
og útvegsmanna í gær var ákveðið að
hækka verð á slægðum og óslægðum
þorski og slægðri og óslægðri ýsu,
sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða
seld til skyldra aðila, um fimm prósent.
Jafnframt var ákveðið að hækka verð á
karfa um sjö prósent. Verð þetta gildir
frá og með 1. mars 2011.
SJÁVARÚTVEGUR
REYKJAVÍKURBORG Útsvar í Reykja-
vík mun hækka úr 14,4 prósent
í 14,48 prósent 1. júlí næstkom-
andi. Borgarstjórn samþykkti
þetta í gær með tíu atkvæðum
meirihluta fulltrúa Besta flokks-
ins og Samfylkingar innar og
með atkvæði fulltrúa Vinstri
grænna. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins greiddu atkvæði á
móti. Með hækkuninni er útsvar
í höfuðborginni komið upp í það
hámark sem leyfilegt er sam-
kvæmt lögum. Hækkunin á að
skila borgarsjóði um 115 millj-
óna króna tekjuauka á síðari
hluta þessa árs. - gar
Álögur á borgarbúa hækka:
Útsvarið fer í
14,48 prósent
GENGIÐ 01.03.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,399
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,52 116,08
188,26 189,18
159,86 160,76
21,439 21,565
20,638 20,760
18,328 18,436
1,4061 1,4143
181,71 182,79
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt
FRÉTTASKÝRING
Mun ríkið lækka eldsneytisgjöld til að
mæta verðhækkunum?
Starfshópur fjármálaráðuneytis
um viðbrögð við verðhækkunum
á eldsneyti mun skila fyrstu til-
lögum sínum hinn 1. apríl næst-
komandi. Það var ákveðið á fundi
ríkisstjórnar í gær, en hann
verður skipaður fulltrúum úr
fjármálaráðuneyti, innanríkis-
ráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og
umhverfisráðuneyti.
Hópurinn mun kanna og meta
verðþróun á eldsneyti og áhrif á
þróun flutningskostnaðar og sam-
gangna. Þá verður rýnt í hvernig
auknar tekjur ríkissjóðs af elds-
neyti megi nota til að niðurgreiða
flutningskostnað, og almennings-
samgöngur í samstarfi við sveit-
arfélög og efla hlut innlendra vist-
vænna orkugjafa.
Lokaskýrsla hópsins skal berast
fyrir gerð næstu fjárlaga.
Eldsneytisverð er nú í sögu-
legu hámarki hér á landi þar sem
bensín lítrinn er á um 227 krón-
ur þar sem hann er dýrastur og
lítrinn af dísilolíu er á tæpar 232
krónur. Síhækkandi heimsmark-
aðsverð á olíu er stór áhrifavald-
ur, en einnig hefur verið deilt á
álögur íslenska ríkisins. Rúmur
helmingur af andvirði hvers
bensínlítra sem seldur er rennur í
ríkis sjóð í formi skatta og gjalda,
en þar munar sérstaklega um
virðisaukaskatt sem leggst ofan á
önnur gjöld og veldur þannig hlut-
fallshækkunum.
Samkvæmt tölum fjármálaráðu-
neytis má rekja um 58 prósent
hækkana á bensíni frá því í des-
ember síðastliðnum til hækkana á
sköttum og gjöldum.
Tryggvi Þór Herbertsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
spurði fjármálaráðherra á þingi
á mánudag hvort mögulegt sé að
gjöld verði lækkuð tímabundið
til að vinna gegn hækkunum á
eldsneytis verði.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra svaraði því til að
ekki væri hægt að gefa sér að
hækkanirnar væru tímabundnar
og því þyrfti að skoða málin í heild
sinni með stofnun starfshópsins.
„Ég viðurkenni fúslega að haldi
verðþróun á innkaupsverði af
þessum toga áfram hlýtur að koma
til greina að mæta því með ein-
hverjum hætti því að það er ekki
ætlunin að láta virðisaukaskatt
leggjast ofan á endalaust hækk-
andi vöruverð.“
Ráðherra tók þó fram að opin-
berar álögur hér á landi væru síst
minni hér á landi en annars stað-
ar. Svíþjóð trónir þar á toppnum,
en 57 prósent af andvirði hvers
bensín lítra og 56 prósent af hverj-
um olíulítra renna í ríkissjóð í
formi skatta.
Þá hafi skattheimtuhlutfall hér
á landi verið mun hærra á árum
áður og náði hámarki árið 1999
þegar hlutfall skatta af útsöluverði
nam 72 prósentum.
thorgils@frettabladid.is
Boða aðgerðir vegna
eldsneytishækkunar
Ríkisstjórnin skipar starfshóp til að meta viðbrögð við verðhækkunum á elds-
neyti. Skilar fyrstu tillögum 1. apríl. Bensínverð í hámarki og helmingur rennur
í ríkissjóð. Hærra verð og skattahlutfall víða í nágrannalöndunum.
75
70
65
60
55
50
45
40
35
30
0%
Skattar sem hlutfall af útsöluverði bensíns og dísilolíu 1997-2011
Hlutfall skatta af
eldsneytisverði
lækkaði jafnt og
þétt fram að hruni,
en núverandi
ríkisstjórn hækkaði
eldsneytisgjöld og
setti á kolefnisgjald
um síðustu áramót.
Hlutfall hefur haldist
í kringum 50% en
innheimt upphæð
á hvern seldan lítra
hefur stigið jafnt og
þétt með hækkun
útsöluverðs.
Þróun skattlagningar á eldsneyti
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
Heimild: Fjármálaráðuneytið
Bensín
Dísil
ALÞINGI Fram er komið frumvarp sem veitir
Íbúðalánasjóði heimild til að færa niður veð-
kröfur á hendur einstaklingum í 110 prósent af
verðmæti fasteignar.
Með því er sjóðnum veitt nauðsynleg lagastoð
til að taka þátt í aðgerðum stjórnvalda vegna
skulda- og greiðsluvanda heimilanna.
Drög að samkomulagi stjórnvalda og fjár-
málastofnana um aðgerðir voru undirrituð í
byrjun desember á síðasta ári og verklags reglur
ákveðnar um miðjan janúar. Þá var ekki talin
þörf á að breyta lögum um Íbúðalánasjóð. Síðar
kom í ljós að slíkrar breytingar þyrfti við.
Frumvarpinu fylgja löng greinargerð og
fylgiskjal frá fjárlagaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins. Í þeim er meðal annars fjallað
um afskriftaþörf Íbúðalánasjóðs, margar tölur
nefndar í því sambandi og ýmsir fyrirvarar
gerðir.
Í greinargerðinni segir að kostnaður við
niður færslu sjóðsins vegna aðgerðanna sé áætl-
aður tæpir 22 milljarðar en í áætlunum sjóðsins
sjálfs komi fram að líklega kunni kostnaðurinn
að verða lægri, jafnvel fimmtán milljarðar.
Í umsögn fjármálaráðuneytisins segir að
Íbúðalánasjóður áætli að afskriftaþörf vegna
frumvarpsins geti að hámarki orðið um 27 millj-
arðar. Segir jafnframt að endanlegar tölur um
afskriftir vegna þessa úrræðis muni ekki liggja
fyrir fyrr en seint á árinu. - bþs
Íbúðalánasjóði veitt heimild til að mæta skulda- og greiðsluvanda heimilanna:
Afskriftaþörf Íbúðalánasjóðs enn óljós
KÍKT Á ÚRVALIÐ Heimild Íbúðalánasjóðs til niðurfærslu
lána eiga að ná til viðskipta sem voru gerð fyrir árslok
2008. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FJÁRMÁL Ingibjörg S. Pálmadóttir
segist hafa gert upp allar skuldir
sínar við Landsbankann. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem
Ingibjörg sendi
frá sér í gær
vegna frétta af
yfirtöku skila-
nefndar Lands-
bankans á íbúð
í New York. Sú
íbúð var skráð
eign Ingibjarg-
ar.
„Undirrituð
hefur gert upp
allar sínar skuldir við Lands-
bankann með samkomulagi
um eignir og peningagreiðslur.
Umrædd íbúð í New York er hluti
af því uppgjöri. Þá er rétt að komi
fram, að Landsbanki Íslands var
ekki með veð í nefndri íbúð sem
er partur af uppgjörinu,“ segir í
yfirlýsingu Ingibjargar. Hún er
stærsti einstaki eigandi 365 miðla
sem gefa út Fréttablaðið. - gar
Ingibjörg S. Pálmadóttir:
Skuldauppgjör
við Landsbanka
INGIBJÖRG S.
PÁLMADÓTTIR
FÓLK „Af hálfu skólans eru þau
ummæli sem þarna eru höfð eftir
fordæmd og
skiptir engu
máli hvort
þau eru sett
fram í gamni
eða alvöru,“
segir skóla-
stjórn Flens-
borgarskóla,
sem áminnt
hefur kennar-
ann Baldur Her-
mannsson fyrir
ummæli á bloggsíðu sinni.
Baldur vék þar að máli nímenn-
inganna sem ákærðir voru fyrir
meinta árás á Alþingi. Stakk
Baldur upp á því að fólkið yrði
sett í gapastokk eða búr. „Og
sýna kellingunum kynferðislega
áreitni. Ekki má gleyma því,“
bætti menntaskólakennarinn
við og hefur nú fengið formlega
áminningu fyrir vikið. - gar
Skólastjórn harmar ummæli:
Áminntur fyrir
bloggfærslu
BALDUR
HERMANSSON