Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 54
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR26FÉSBÓKIN
Fimmta árlega Big Lebowski hátíðin verður haldin
12. mars í Keiluhöllinni. Þar verður samnefndri
kvikmynd Coen-bræðra frá árinu 1998 gert hátt
undir höfði en myndast hefur í kringum hana dygg-
ur aðdáendahópur víða um heim, þar á meðal hér á
landi.
„Síðasta hátíð var sú fjölmennasta hingað til.
Það virðist alltaf passa að það séu tíu fleiri en árið
áður,“ segir Svavar Helgi Jakobsson, sem skipulegg-
ur hátíðina ásamt Ólafi Sverri Jakobssyni. 65 manns
mættu í fyrra þar sem þátttakendur horfðu á The
Big Lebowski, spiluðu keilu og kepptu um besta bún-
inginn. Hörður Guðlaugsson bar þá sigur úr býtum
annað árið í röð er hann mætti í bleyju, sem er til-
vísun í eina setningu í myndinni. „Ég stórefast um
að það verði bætt,“ segir Svavar Helgi um búning-
inn. Hann vonast til að Herði verði veitt hörð keppni
í ár. „Hann er búinn að vera svolítill einvaldur.
Hann hlýtur að vera búinn að toppa sig.“
Ný uppákoma verður á hátíðinni í þetta sinn. Hún
nefnist „Fuckin’ Fascist“ þar sem keppendur kasta
bolla í hausinn á hinum húðlata The Dude í gínu-
formi. Fjölmörg verðlaun verða veitt, meðal annars
fyrir fyrstu fimm sætin í búningakeppninni, besta
skorið í keilu, ásamt „Achiever“-heiðursverðlaun-
unum. Miðar fást á Bolur.is á 2.500 kr. og þar er allt
innifalið, þar á meðal Lebowski-stuttermabolur. - fb
Heiðra Lebowski í fimmta sinn
SIGURVEGARI Sigurvegarinn frá í fyrra, Hörður Guðlaugsson, er
í miðjunni. Eftirhermur persónanna Walter og The Dude eru
beggja megin við hann.
„Hann er rosalegur snillingur. Eitt af mynd-
böndunum hans á Youtube er með 46 millj-
ónir áhorfa. Þannig að það eru fleiri sam-
mála mér,“ segir Ragnar Hlöðversson hjá
Icegigg Entertainment.
Ragnar stendur fyrir komu kanadíska
grínistans Jon Lajoie til landsins í Háskóla-
bíó 12. maí. Lajoie sló fyrst í gegn með
myndböndunum sínum á Youtube sem hafa
notið gríðarlegra vinsælda. Hann fer í dag
með hlutverk í þáttunum The League á sjón-
varpsstöðinni FX Network og hefur komið
fram á sjónvarpsstöðinni Comedy Central,
sem er ein vinsælasta kapalsjónvarpsstöð
Bandaríkjanna.
„Ég tók eftir honum fyrir tveimur árum
og leist vel á myndböndin hans á Youtube,“
segir Ragnar. „Ég er búinn að vera að vinna
í því að fá hann til landsins í tvö og hálft
ár. Hann hefur verið mjög upptekinn við
upptökur á sjónvarpsþættinum sínum en
sló svo loksins til og kemur í vor.“
Ragnar segir Lajoie spenntan fyrir
heimsókninni til landsins. „Hann hefur
ekki komið hingað áður og er spenntur
að koma og sjá landið.“ - afb
FLYTUR INN GRÍNISTA Ragnar
Hlöðversson (til vinstri) hefur unnið
að því að fá kanadíska grínistann
Jon Lajoie til landsins síðustu ár.
Vinnan er að skila sér og Lajoie
kemur í maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það hefði verið gaman að geta klárað
svona eins og eitt ár. En þetta er nú
svona með ævintýrin, þau eru stutt.
Svo koma ný ævintýri í staðinn,“ segir
tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjóns-
son.
Til stendur opna hótel við Mýrar-
götu 2-8 vorið 2012. Valgeir og Ásta
Kristrún Ragnarsdóttir, eiginkona
hans, hafa rekið menningarsalinn
Nema Forum í húsnæðinu frá því í
fyrra. Þá hefur íþróttafélagið Mjöln-
ir haft aðsetur í húsnæðinu síðustu
ár. Til stendur að byggja hæð ofan á
húsið, en 111 herbergi verða á hótel-
inu ásamt líkamsræktaraðstöðu, bar
og veitingaaðstöðu á jarðhæð. Hótelið
verður hluti af keðju Icelandair.
„Það er mikill sjónarsviptir að þess-
um sal,“ segir Valgeir. „Hann var svo
velkomin viðbót við tónlistarflóruna.
Stærðin er ákjósanleg og fólki fannst
svo þægilegt að vera í þessum sal og
spila þar.“
Reglulegir menningarviðburðir
hafa verið í húsinu frá því að Valgeir
og Ásta opnuðu Nema Forum í hús-
inu í fyrra. Þau vissu þó að til stæði
að innrétta hótel í húsinu þegar þau
hófu þar rekstur. „En það var kannski
ekki reiknað með að þetta gengi svona
hratt fyrir sig,“ segir hann.
Spurður hvort hann leiti nú að nýju
húsnæði undir menningarsal segist
Valgeir ekki vera að því. „Það var
hálfgerð tilviljun að við rákumst á
þennan sal,“ segir hann. „Við vorum
að leita okkur að skrifstofuhúsnæði.
En það er meira en að segja það að
takast svona á hendur.“
Íþróttafélagið Mjölnir leitar nú að
nýju húsnæði og að sögn formanns-
ins Jóns Viðars Arnþórssonar er slatti
af tómu húsnæði á svæðinu nálægt
Mýrargötu. „Við erum á fullu að leita
og vonumst eftir að fá svör mjög
fljótlega,“ segir hann. Mjölnir er með
leigusamning út ágúst og Jón segir að
stefnan sé að finna húsnæði á sama
svæði og íþróttafélagið er nú.
atlifannar@frettabladid.is
VALGEIR GUÐJÓNSSON: MIKILL SJÓNARSVIPTIR AÐ ÞESSUM SAL
Menningarsalur og Mjölnir
víkja fyrir hóteli við höfnina
NÝTT HÓTEL VIÐ MÝRARGÖTU
Valgeir Guðjónsson og menningarsalurinn
Nema Forum víkja fyrir hóteli við Mýrargötuna
á næstunni ásamt Jóni Viðari Árnþórssyni og
félögum í íþróttafélaginu Mjölni, sem hyggst
þó vera áfram á svæðinu.
Listræni kvennahópurinn Weird
Girls Project frumsýndi nýtt mynd-
band á skemmtistaðnum Bakkusi
í gærkvöldi. Það var unnið með
hljómsveitinni Legend, sem er sam-
starfsverkefni Krumma Björgvins
og Halldórs Björnssonar. Lagið sem
sveitin flytur í myndbandinu nefnist
Sister og er það fyrsta sem heyrist
úr herbúðum hennar. Með sam-
starfinu við skrítnu stúlkurnar fylgir
Legend í kjölfar annarra
íslenskra flytjenda
sem gert hafa með
þeim myndbönd að
undanförnu. Má þar
nefna söngkonuna
Emilíönu Torrini og
rokksveitina
Agent Fresco.
Guðjón Davíð Karlsson, Gói,
virðist ætla að hrista af sér þær
slæmu viðtökur sem þáttur hans
Hringekjan fékk því hann hefur
nú fetað í fótspor Hollywood-
stjörnunnar Johnnys Depp með því
að tala inn á teiknimyndina Rango.
Myndin fjallar um kamelljónið
Rango sem lendir í hinum ýmsu
ævintýrum og ljáir Depp persón-
unni rödd sína í ensku útgáfunni
á meðan Gói sér um þá íslensku.
Miðað við sýnishornið
úr teiknimyndinni,
sem verður frum-
sýnd á föstudag,
gæti hún hæglega
slegið í gegn á
meðal íslenskra
kvikmyndagesta
og þar með fært
bros á varir
Góa á nýjan
leik. -fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Félagi Charlie Sheen bætir
bara í. Kennir fólki að skutla sér
í óravíddir út fyrir boxið. Því-
líkur afburðaleikmaður!“
Sölvi Tryggvason blandar sér í umræðuna
um leikarann Charlie Sheen.
Hafðu jákvæð áhrif á líf þitt. Finndu og nýttu
styrkleika þína. Eru hindranir innra með þér?
Hvernig er best að tækla neikvæðar tilfinningar?
Gætir þú aukið gleðina? Ertu að nýta hugann,
hæfileikana og tækifærin? Þetta og margt fleira
nýtanlegt og skemmtilegt verður hluti af spennandi
námskeiði sem þú mátt ekki missa af.
Maður lifandi, Borgartúni 24
Fimmtud. 3. mars, kl.18:00
Skráning á madurlifandi@madurlifandi.is
eða í síma 585 8701
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
www.madurlifand.is
Helga Marin
Bergsteinsdóttir
Sigraðu sjálfan þig!
Matti Ósvald
Stefánsson
Námskeiðagjald
4.500 kr.
Helga Marin og Matti Ósvald hafa vakið verðskuldaða
athygli fyrir lifandi og skemmtilega fyrirlestra
Grínistinn Jon Lajoie til landsins