Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 44

Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 44
timamot@frettabladid.is Mín ástkæra eiginkona, móðir, dóttir, systir, mágkona, frænka og vinur, Nína Karen Jónsdóttur Háagerði 67 í Reykjavík, lést fimmtudaginn 24. febrúar s.l. Útför Nínu Karenar fer fram frá Bústaðakirkju nk. föstudag 4. mars og hefst athöfnin kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast Nínu er bent á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, sími 561 3770. Fyrir hönd okkar allra sem Nína Karen var svo kær, Karl Gunnarsson, Anna Lilja og Unnur Karen Karlsdætur. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Óskar Kristinn Ólafsson vélfræðingur, Mörk hjúkrunarheimili, áður Steinagerði 9, Reykjavík, lést fimmtudaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 4. mars kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Ólafur M. Óskarsson Hólmfríður Pétursdóttir Rúnar Óskarsson María Antonsdóttir Valdimar Óskar Óskarsson Kristín Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og stórfrænka Kristbjörg Þórarinsdóttir frá Ríp lést á líknardeild Landakotsspítala 23. febrúar. Útförin fer fram fimmtudaginn 3. mars kl. 13.00 í Kópavogskirkju. Ævar Jóhannesson Jóhannes Örn Ævarsson Sif Garðarsdóttir Sigríður Ævarsdóttir Benedikt Guðni Líndal Þórarinn Hjörtur Ævarsson Barbara Ösp Ómarsdóttir Ólöf Ævarsdóttir Björn Bögeskov Hilmarsson barnabörn og barnabarnabarn. Yndislega dóttir mín, fósturdóttir, systir, barnabarn, móðir, tengdamóðir, amma og frænka, Marsella Hrönn Eðvarðsdóttir hárgreiðslukona Los Andes Chile, lést á sjúkrahúsinu í San Felipe í Chile sunnudaginn 14. nóvember 2010. Útför hennar fór fram í Santiago fimmtudaginn 18. nóvember. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Kvennaathvarfsins. Bankanúmer 101-26-43227. Kt. 410782-0229. Roxanna Björg Morales Magnús Þorsteinsson og fjölskyldur. Yndisleg móðir mín Guðfinna Gyða Guðmundsdóttir tækniteiknari Sólheimum 25, Reykjavík, lést 21. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.00. Helga Magnúsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir Sigurjón Markússon hagfræðingur og stýrimaður Jollaksentie 60 B 20, Helsinki, áður til heimilis á Seltjarnarnesi, lést þriðjudaginn 22. febrúar 2011. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 4. mars, kl. 13.00. Elvira Markusson Stefania Inga Markusson Alexander Markus Markusson Hjördís Sigurjónsdóttir Egill Már Markússon Fanney Pétursdóttir Kristín Markúsdóttir, Þórður Pálsson, Örn Markússon Margunn Rauset og börn Okkar elskulegi vinur, stjúpi og frændi Þórólfur Valgeir Þorleifsson fyrrverandi flokkstjóri hjá Reykjavíkurborg, til heimilis að Blikahólum 12 í Reykjavík, sem lést mánudaginn 21. febrúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13.00. Ingibjörg Benónísdóttir Matthildur Eiríksdóttir systkinabörn og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Dagbjört Guðmundsdóttir Hólmgarði 25, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 20. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.00. Jóhanna Jóhannesdóttir Þóra Björt Sveinsdóttir Andri Berg Haraldsson Jóhannes Berg Andrason Tómas Berg Andrason Þorsteinn Jóhannesson Ólöf Erlingsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Guðmundur Vignir Sigurðsson Steinunn S. Kristjánsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma María Helga Guðmundsdóttir frá Flatey á Skjálfanda, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Jónína Pálsdóttir Tungusíðu 8, Akureyri (áður húsmóðir í Holtskoti í Skagafirði), lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð, 22. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Glaumbæjarkirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Sigurjón Ingimarsson Páll Björgvin Ingimarsson Halldóra Stórá Brynleifur Ingimarsson Hulda Ólafsdóttir Erlingur Jennason Oddný Matthíasdóttir börn og barnabörn. Sjálfboðaliðasamtökin Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) fagna 50 ára starfsafmæli á Íslandi í ár en af því tilefni stend- ur til að gefa út bók með sögum sjálfboðaliða, halda listasýn- ingu og málþing svo dæmi séu nefnd. AUS er aðili að sam- tökunum International Cultural Youth Exchange (ICYE) en upphaf þeirra má rekja til ársins 1949 þegar ungmennaskipti hófust á milli Þýskalands og Bandaríkjanna í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Það var gert með það að markmiði að græða sár og stuðla að friði á milli þjóðanna. „Samtökin, sem eru frjáls félagasamtök rekin án hagn- aðarsjónarmiða af heimkomnum sjálfboðaliðum, eru nú með starfsemi í 34 löndum víðs vegar um heim og eru starfrækt með það að markmiði að gefa ungu fólki tækifæri til að kynn- ast menningu og samfélagi annarra þjóða. Því gefst færi á að ferðast til framandi landa í þeim tilgangi að auka þekkingu á ólíkri menningu og stuðla þannig að skilningi og friði,“ segir Kristín Björnsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna. AUS hefur síðustu fimmtíu ár gefið Íslendingum tækifæri til að vinna sem sjálfboðaliðar erlendis ásamt því að taka á móti erlendum sjálfboðaliðum og kynna þeim íslenska siði og menningu. „Við sendum bæði til landa innan og utan Evr- ópu og erum meðal annars með fólk í Kenía, Gana og Nepal. Margir vinna á barna- og munaðarleysingjaheimilum og öðl- ast reynslu sem breytir þeim fyrir lífstíð og hefur í sumum tilfellum áhrif á ákvarðanir til framtíðar. Þá erum við með fimmtán sjálfboðaliða hér á landi sem starfa meðal annars með fólki í Ásgarði, á Sólheimum og hjá Rauða krossi Íslands. Sjálfboðaliðarnir fylla ekki ákveðin stöðugildi heldur koma sem viðbót og aðstoða við ýmislegt sem til fellur. Þeir dvelja allt frá nokkrum vikum upp í ár í móttökulandinu og koma oftast reynslunni ríkari heim.“ Til að varpa ljósi á hlutverk sjálfboðaliða var ákveðið að ráðast í bókaútgáfu í tilefni afmælisins og safna saman sögum frá sjálfboðaliðum innan og utan Evrópu. „Við fengum styrk frá Evrópu unga fólksins og er von á bókinni í haust. Um svipað leyti langar okkur til að vera með listasýningu til að sýna hvað sjálfboðaliðar okkar á Íslandi hafa verið að gera en margir hafa til dæmis lært að prjóna. Eins langar okkur að setja upp ljósmyndasýningu með myndum frá sjálfboðaliðum erlendis og halda málþing þar sem þýðing sjálfboðaliða fyrir samfélagið verður rædd.“ vera@frettabladid.is ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI: 50 ÁRA Brú milli þjóða VELDUR STRAUMHVÖRFUM Kristín segir þá reynslu sem sjálfboðalið- arnir öðlast bæði á Íslandi og erlendis breyta mörgum fyrir lífstíð og hafa áhrif á ákvarðanir til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.