Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 20

Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 20
MARKAÐURINN2. MARS 2011 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R Hagnaður af rekstri Íslandspósts á árinu 2010 nam 93 milljónum króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var hins vegar um 348 milljónir króna, að því er fram kemur í til- kynningu félagsins. „Heildartekjur félagsins á síð- asta ári námu 6,3 milljörðum króna og drógust saman um eitt prósent frá fyrra ári. Heildar- eignir voru 5,0 milljarðar króna í árslok 2010 og eigið fé nam 2,7 milljörðum króna,“ segir þar en fram kemur að félagið hafi greitt ríkissjóði 40 milljóna króna arð á árinu. Bent er á að verulegur samdráttur hafi orðið í bréfasend- ingum á undanförnum árum. „Frá hausti 2008 til ársloka 2010 hefur bréfum í einkarétti fækkað um 20 prósent. Spáð er áframhaldandi magnminnkun og má gera ráð fyrir að bréfapósti muni fækka enn frekar um allt að 25 prósent til ársins 2015.“ - óká Tekjur drógust saman Hagnaður Íslandspósts í fyrra nam 93 milljónum króna. Útlit fyrir að bréfasendingum fækki enn. Bandaríski tæknirisinn Apple sviptir í dag hulunni af næstu kynslóð iPad-spjaldtölvunnar. Fyrsta kynslóð tölvunnar kom á markað í apríl í fyrra. Beðið hefur verið með nokkurri eftirvæntingu eftir þessari nýjustu spjaldtölvu og mikið spekúler- að í því hvað hún muni bera og innhalda. Netmiðillinn MacRumors er eðli málsins sam- kvæmt meðal þeirra öflugustu í fréttaskrifum um væntanlegar tækninýjungar frá Apple. Þar sagði í vikubyrjun að vísbendingar væru um að tölvan, eða einhver eintök hennar, verði hvít að lit. Netmiðillinn Engadget bætir því við að búkurinn verði líklega tíu grömmum léttari og rétt örlítið þynnri en forverinn, minnið stærra, hraðvirkari A5- örgjörvi og hugsanlega myndavélar bæði að framan og aftan, sú að framan ætluð fyrir vefspjall. Mynda- vélarnar voru einmitt það sem notendur fyrstu iPad- tölvunnar fundu helst að henni. Bandaríska dagblað- ið San Francisco Chronicle hnýtir við að forstjórinn, Steve Jobs, muni ekki kynna tölvuna þar sem hann sé í veikindaleyfi. Líklegasti staðgengill hans sé Phil Schiller, aðstoðarfor- stjóri markaðsmála hjá Apple, en hann kynnti iPhone 3Gs til sögunnar fyrir tveim- ur árum þegar Jobs gat það ekki. - jab Ný iPad-tölva handan við hornið FRÉTTABLAÐIÐ Í IPAD Búist er við tíðindum úr herbúðum Apple vestur í Bandaríkjunum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar „Ef tap Bókabúðar Máls og menningar [BMM] var svo mikið að ekki var hægt að borga neinum eftir söluna í desember þá var ljóst fyrir löngu að fyrirtækið var gjaldþrota,“ segir Steinþór Steingrímsson, stjórnarfor- maður fyrirtækisins Ekki spurning. Fyrirtækið gefur meðal annars út borðspilið Spurt að leikslokum. Stjórnendur fyrirtækisins íhuga að láta reyna á 64. grein laga um gjaldþrotaskipti. Greinin kveður á um að þeir sem láta hjá líða að leita gjaldþrotaskipta þegar svo er ástatt hjá þeim beri skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum. Ákvörðun verður tekin þegar búið verður að gera upp þrotabúið. Skiptastjóri tók við búinu í síðustu viku. Hann hefur ekki tekið saman kröfuhafalista. „Við munum að sjálfsögðu reyna að stýra því eins vel og við getum að hafa áhrif á virði lagersins og lágmarka tap birgja,“ segir Jóhannes Sigurðsson, annar eigenda Kaupangs sem rak verslun BMM frá því haustið 2009 þegar Penninn-Eymundson hætti þar rekstri. Kaupangur á jafnframt húsnæðið sem hýsti verslun BMM. Verslunin greiddi húsaleigu til Kaupangs. Hún var nærri tvöfalt hærri en jafnan er í sambærilegu húsnæði við Laugaveg. Jóhannes neitaði að tjá sig að öðru leyti um reksturinn. Eigendur BMM greindu starfsfólki frá því fyrir hálfum mánuði að reksturinn væri í kröggum og fyrir- tækið á leið í þrot. Þetta kom bókaútgefendum á óvart þótt þeir hafi árangurlaust reynt að fá gert upp eftir jólaverslunina. Allir eiga þeir kröfu á þrotabúið nema bókaútgáfan Uppheimar sem krafði BMM um stað- greiðslu. Um vinnureglu var að ræða hjá útgáfunni. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, undrast reyndar að eigendur BMM hafi ekki haft samband við forleggjara þegar þeir sáu hvert stefndi. Slíkt hafi tíðkast um langt skeið. Útgefendur hafi yfi rleitt verið reiðubúnir til að koma til móts við bóksala. Bókaútgefendur og aðrir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja tímasetningu gjaldþrotsins einkenni- lega og benda á að reksturinn hafi farið í þrot skömmu eftir að greiðslukortafyrirtækin gerðu upp eftir jólaverslunina. Birgjar BMM íhuga mál gegn bóksölum Eigið fé Bókabúðar Máls og menningar var neikvætt í lok árs 2009. Eigendur gátu ekki gert upp við birgja eftir jólin. B A N K A B Ó K I N Samanburður á vaxtatöflum bankanna *Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25% Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum. Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja Markaðsreikningur 0,90%A 11,45% 11,40% Vaxtaþrep 1,90% 11,50% 11,50% Vaxtareikningur 1,40%B 11,45% 11,45% MP Sparnaður 9,50 til 9,50 til 2,15% 11,40% 11,40% PM-reikningur 10,45 til 11,25 til 2,20% 11,40% 11,45% Netreikningur 2,45% C 11,45% 11,45% Sparnaðarreikningur 2,35% 10,20% Ekki í boði. BMM tapaði 10,3 milljónum króna í þá fjóra mánuði sem nýir eigendur ráku verslunina árið 2009 og var eigið féð neikvætt um 9,8 milljónir króna. Skuldir námu 124 milljónum króna. Þar af voru 94 milljónir skuldir gagnvart birgjum og 14 milljónir við eigendur, sem bæði áttu verslunina og húsnæðið. Ársreikningur síðasta árs liggur ekki fyrir. Eftir því sem næst verður komist var bóksala BMM ágæt í fyrra og nam veltan tæpum 300 milljónum króna. Jóhannes Sigurðsson, stjórnarformaður BMM, segir þetta ekki rétt en neitar að tjá sig um afkomuna að öðru leyti. Fyrrverandi starfsfólk BMM segir að í ljósi veltunnar hafi fjárstreymi verið einkennilegt því launagreiðslur hafi dregist oft og starfsfólk löngum þurft að leita til Kaupangs til að fá laun sín greidd. Starfsfólki gekk illa að fá borgað BÓKAVERSLUN Í KRÖGGUM Rekstur Bókabúðar Máls og menn- ingar var í kröggum í lok árs 2009. Há húsaleiga er talin hafa sett reksturinn á hliðina. Sömu eigendur eiga húsnæðið og ráku verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSAÞrjú einkahlutafélög Sigurðar Bollasonar fjárfestis töpuðu 1,4 milljörðum króna árið 2009, sam- kvæmt nýbirtum ársreikningum. Félögin fengu um tíu milljarða lán hjá viðskiptabönkum í júlí og ágúst 2008 til kaupa á hluta- bréfum í Existu, Glitni og Lands- bankanum. Hlutabréfin voru sett að veði fyrir lánunum, sem voru á gjald- daga í fyrra. Bréfin urðu verð- laus eftir bankahrunið, rúmum mánuði eftir að síðustu viðskipt- um lauk. Vaxtagjöld námu samtals 1,4 milljörðum króna króna fyrir lánum félaganna árið 2009 og skýrir það tapið. Sigurður er sonur Bolla Krist- inssonar, sem kenndur er við verslunina Sautján. Hann stund- aði áður viðskipti með Magnúsi Ármann og Þorsteini M. Jónssyni. Skýrsla var tekin af Sigurði í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknar á meintri markaðs- misnotkun Landsbanka um miðj- an janúar. Eftir skýrslutökuna sagðist Sigurður hafa borið mikið fjárhagslegt tjón af viðskiptun- um. - jab Skuldug félög Sigurðar Bollasonar Félög Sigurðar Bollasonar Félag Eign í félagi Upphæð láns 2008* Staðan 2009* Mismunur Dot Glitni 4,6 5,3 0,7 BSU Landsbankanum 3,7 4,8 1,1 S102 Exista 1,8 2,1 0,3 Samtals 10,1 12,2 2,1 * Í milljörðum króna ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING? SAGA CLASS Úrvalsþægindi, gott rými og fyrsta flokks þjónusta. Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki. Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir: Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki. Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins. Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair. Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum. + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 5 39 19 0 3 /2 01 1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.